Ný heimasíða og frábær Singles Day tilboð Rúmfatalagerinn 11. nóvember 2021 08:50 Gæða sængur og koddar eru vinsælasta jólagjöfin í Rúmfatalagernum. Uppfærð heimasíða Rúmfatalagersins auðveldar jólainnkaupin.
Rúmfatalagerinn býður upp á dúndurafslætti á degi einhleypra sem er í dag, en þess má geta að öll Singles Day tilboðin gilda bæði í vefverslun og í öllum verslunum Rúmfatalagersins. Nýlega endurbætt og glæsileg heimasíða er komin í loftið og hillurnar svigna undan fallegri heimilisvöru, gjafa- og jólavöru. Ívar Þórður Ívarsson, verslunarstjóri í Rúmfatalagernum á Smáratorgi, segir netverslun hafa stóraukist og Rúmfatalagerinn komi sannarlega til móts við viðskiptavini. Ívar Þórður Ívarsson verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Smáratorgi segir starfsfólk komið í blússandi jólaskap. „Við finnum fyrir mun meiri netverslun en undanfarin ár og sú þróun er ekkert nema jákvæð. Á Singles Day í fyrra var svo mikill hamagangur í öskjunni hjá okkur að við opnuðum aðra búð inni í búðinni til að anna netpöntunum. Við lærðum mikið á síðasta ári og höfum lagt mikla vinnu í heimasíðuna okkar undanfarnar vikur. Árangurinn er glæsileg og aðgengileg síða sem er afar þægileg í notkun. Við höfum einnig betrumbætt ferlið frá því viðskiptavinur pantar og þangað til hann sækir og nú getur fólk pantað í rólegheitum heima að kvöldi og rennt svo í hádeginu daginn eftir og sótt. Við sendum einnig út á land með Póstinum. Fólk á að fá fyrsta flokks þjónustu hjá okkur, eins og alltaf,“ segir Ívar, starfsfólk verslana Rúmfatalagersins sé komið í blússandi jólaskap. „Þetta er skemmtilegur tími og jólavaran í ár er svo falleg. Við höfum hlakkað til þessa dags lengi enda hægt að kaupa frábærar jólagjafir hjá okkur. Sængurver og sloppar eru alltaf mjög vinsælar jólagjafir, einnig ljós og lampar og önnur heimilisvara en lang vinsælastu gjafirnar eru sængur og koddar. Það verða líka allir að eiga góða sæng, við knúsum sængina líklega meira en nokkurn annan. Rúmfatalagerinn býður upp á mesta úrval landsins af sængum og fyrir jólin eigum við alltaf nóg til. Ef skila þarf vörum eða skipta þá er það ekkert vandamál í Rúmfatalagernum,“ segir Ívar.
Jól Verslun Mest lesið Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Verðbólgan hjaðnar þvert á spár Viðskipti innlent Segir stefna í að Vélfag verði lagt niður vegna þvingananna Viðskipti innlent Óvænt en breytir þó ekki spám Viðskipti innlent Reiknuðu með halla en enduðu í hundruð milljóna króna plús Viðskipti innlent Fjórir ráðnir nýir fagstjórar hjá Kvikmyndaskólanum Viðskipti innlent „Áfengið þarf að vera erlendis þegar þú pantar það“ Viðskipti innlent Fiskar komnir í fyrstu 25 metra eldistankana Viðskipti innlent Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Rekstur Árborgar jákvæður og bæjarstjóri fagnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Greiðsluáskorun „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Sjá meira