Innlent

267 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 21 þúsund manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Rúmlega 21 þúsund manns hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

267 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 111 af þeim 267 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 156 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 2.259 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 2.023 í gær. 3.301 eru nú í sóttkví, en voru 3.028 í gær. 429 eru nú í skimunarsóttkví.

Á vef Landspítalans segir að tíu sjúklingar liggi nú inni á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 64 ár. Þrír eru á gjörgæslu, einn þeirra í öndunarvél.

Sérstaklega mikill fjöldi smita kom upp á landamærunum í gær, eða 51, eða 43 virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki átta.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 655,3, en var 615,2 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 57,3 samanborið við 47,5 í gær.

Alls hafa 21.587 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til COVID-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.979 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.772 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 820 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá voru 253 sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×