Vopnaður maður handtekinn þar sem drottningin dvelur Vésteinn Örn Pétursson skrifar 26. desember 2021 08:18 Drottningin ver þessum jólum í Windsor-kastala, steinsnar frá heimili sínu. Skokkarinn á myndinni er ekki maðurinn sem var handtekinn. AP/Alastair Grant Breska lögreglan handtók í gær vopnaðan mann á lóð Windsor-kastala, þar sem Elísabet Englandsdrottning hefur dvalið um jólin.
Breska ríkisútvarpið segir frá því að maðurinn sé grunaður um að hafa í óleyfi farið inn á verndað svæði, sem og vopnalagabrot. Þó kemur ekki fram hvers konar vopn maðurinn, sem er nítján ára, var með. Lögregla segir hann ekki hafa komist inn í neinar byggingar og að hann hafi fundist nokkrum andartökum eftir að hann fór inn á lóðina. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni í Thames Valley. Elísabet Englandsdrottning dvelur í Windsor-kastala yfir þessi jól, en kastalinn er um 35 kílómetra frá Buckingham-höll í London, þar sem hún býr. Venjulega dvelst drottningin þó í þriðju fasteigninni um jólin, í Sandringham í Norfolk. Vegna kórónuveirunnar þótti það þó ekki ráðlegt, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Elísabet Englandsdrottning flutti árlegt jólaávarp sitt á Þorláksmessu, sem að þessu sinni fór fram í Windsor-kastala. Þar minntist hún meðal annars Filippusar eiginmannns síns, sem lést fyrr á þessu ári. Til vinstri við hana má sjá mynd af þeim hjónum.AP/Victoria Jones
England Kóngafólk Bretland Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Fleiri fréttir Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Sjá meira