Keyrði á við Kaplakrika og var handtekinn við álverið Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. desember 2021 08:27 Ökumaðurinn var stöðvaður á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík, eftir að hafa ekið á aðra bifreið við Kaplakrika. Vísir/Vilhelm Á sjötta tímanum síðdegis í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp við Kaplakrika í Hafnarfirði. Bíl hafði verið ekið aftan á aðra bifreið og síðan ekið í burtu.
Sá sem óhappinu olli var síðan stöðvaður af lögreglu á Reykjanesbraut, við álverið í Straumsvík og handtekinn, grunaður um ölvun við akstur. Að lokinni sýnatöku var viðkomandi vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Ökumaður bifreiðarinnar sem ekið var á var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á bráðamóttöku vegna eymsla í baki, hálsi og öxl. Ölvunarakstur og innbrot Fimm aðrir ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi og nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis. Þrír þeirra í Reykjavík, ýmist í miðbænum eða Hlíðunum. Einn var stöðvaður í Garðabæ, og loks einn til viðbótar í Hafnarfirði. Upp úr klukkan tíu í gærkvöldi var svo tilkynnt um húsbrot og eignaspjöll í fyrirtæki í Hlíðunum í Reykjavík, þar sem farið hafði verið inn í húsnæði fyrirtækisins og hlutir þar inni skemmdir. Klukkan hálf fimm í nótt var svo tilkynnt um annað innbrot, einnig í fyrirtæki í Hlíðunum. Þar var maður handtekinn á vettvangi grunaður um innbrotið og hann vistaður í fangageymslu lögreglu.
Lögreglumál Garðabær Hafnarfjörður Reykjavík Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira