Mun hrapa í Kyrrahaf árið 2031 Gunnar Reynir Valþórsson og Samúel Karl Ólason skrifa 3. febrúar 2022 07:28 Alþjóðlegu geimstöðinni var komið á sporbaug um jörðu árið 1998 og mun því hafa gegnt hlutverki sínu í rúma þrjá áratugi þegar hún verður tekin úr notkun. Getty Alþjóðlega geimsstöðin mun hrapa til jarðar árið 2031. Þetta kemur fram í nýjum áætlunum NASA en stöðinni var komið á sporbaug um jörðu árið 1998 og mun því hafa gegnt hlutverki sínu í rúma þrjá áratugi þegar hún verður tekin úr notkun.
Til stendur að taka stöðina af sporbaug sínum í janúar 2031 og þá mun hún falla hratt til jarðar og lenda á afviknum stað í Kyrrahafinu, sem kallast Point Nemo og hefur oft verið notaður til að beina geimrusli sem fellur til jarðar. Staðurinn þykir hentugur til slíks þar sem rúmir 2.700 kílómetrar eru í næstu mannabyggð. Að sögn NASA mun stofnunin reiða sig á einkageirann í meira mæli þegar kemur að geimferðum því ekki stendur til að setja aðra stöð á sporbaug um jörðu. Forsvarsmenn NASA hafa þó unnið með einkafyrirtækjum að þróun nýrra geimstöðva á braut um jörðu og má þar nefna geimferðamennskufyrirtækið Axiom, Blue Origin og Northrop Grumman. Ax-1, @Axiom_Space's first private astronaut mission to the @Space_Station, is now scheduled to lift off from @NASAKennedy on Mar. 30.The crew is set to spend eight days aboard the orbiting lab conducting science, education, and commercial activities: https://t.co/vfTdo17FIz pic.twitter.com/UVwM12gDk2— NASA (@NASA) February 2, 2022 Forsvarsmenn þess opinberuðu nýverið að þeir ætluðu sér að koma upp tökuveri fyrir kvikmyndir og tónlist í geimnum. Það ætti að vera hluti af nýrri geimstöð sem verður í fyrstu tengd Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimstöðin, sem er á stærð við amerískan fótboltavöll fer umhverfis jörðina á níutíu mínútna fresti og allar götur frá árinu 2000 hefur einhver geimfari verið þar um borð. Upprunalega átti geimstöðin að vera í notkun í einungis fimmtán ár en forsvarsmenn NASA segjast vongóðir um að hún muni endast til 2030, þrátt fyrir viðvaranir embættismanna í Rússlandi um að geimstöðin væri úr sér gengin. Í frétt Space.com er vitnað í skýrslu sem NASA birti í síðasta mánuði en þar segir að stofnunin gæti sparað allt að 1,8 milljarð dala með að hætta rekstri geimstöðvarinnar og þann pening væri hægt að nota í annað. Því fer að koma að leiðarlokum hjá geimstöðinni en forsvarsmenn NASA tilkynntu í fyrra að breytingar hefðu verið gerðar á áherslum stofnunarinnar. Markmiðið væri að leggja meiri áherslur á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Má þar nefna mannaðar ferðir til tunglsins sem NASA vill hefja á þessum áratug. Þá vill NASA nota tunglið sem stökkpall lengra út í sólkerfið, eins og til Mars. Rannsóknir sýna að finna má ís í gígum á pólum tunglsins og þann ís má bæði nota til að framleiða eldsneyti fyrir geimför og halda við byggð manna á tunglinu. Fyrsta geimskoti Artemis-áætlarinnar, sem gengur út á að koma mönnum til tunglsins hefur verið frestað til mars. Það geimskot kallast Artemis-1 og mun bera ómannaða Orion-geimfar á braut um tunglið. Í Artemis-2 verða geimfarar sendir á sporbraut um tunglið en Artemis-3 á að ganga út á að lenda mönnum aftur á tunglinu. Ný geimstöð þegar á sporbraut Smíði nýrrar geimstöðvar á braut um jörðu hófst í fyrra en hún er smíðuð af Kínverjum. Þegar þetta er skrifað eru þrír geimfarar um borð í Tiangong geimstöðinni. Þeim var skotið á loft í október og eiga þau að vera í geimstöðinni í sex mánuði og vinna að áframhaldandi smíði hennar. Sjá einnig: Kínverjar spýta í lófana í geimnum Kínverjar og Rússar hafa einnig gert samkomulag um að vinna í sameiningu að því að koma upp rannsóknarstöð á yfirborði tunglsins.
Alþjóðlega geimstöðin Geimurinn Bandaríkin Tengdar fréttir Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. 11. desember 2021 08:01 Vilja koma kvikmyndaveri út í geim á næstu árum Forsvarsmenn breska fyrirtækisins Space Entertainment Enterprise hafa tilkynnt áætlanir um að framleiða nýja viðbót við Alþjóðlegu geimstöðina. Þessa viðbót á að skjóta út í geim og nota sem sérstakt kvikmyndatökuver. 27. janúar 2022 10:18 Geimfari náði mynd af þotu á flugi Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hafa annað sjónarhorn á Jörðina en við hin. Það sést glögglega á ljósmynd sem bandaríski geimfarinn Megan McArthur náði úr geimstöðinni á dögunum. 11. október 2021 23:30 „Ég vil horfa á þennan hnött og meta fegurð hans“ Leikarinn William Shatner fer út í geim á morgun. Það mun hann gera með þremur öðrum geimförum um borð í geimfarinu NS-18. Hinum níræða Shatner og geimförunum verður svo skotið á loft af starfsmönnum Blue Origins. 12. október 2021 15:49 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
Annað hvort dreifum við okkur um Vetrarbrautina eða deyjum út Mannkynið er dauðadæmt, dreifi það sér ekki um sólkerfið og jafnvel lengra en það. Án þess að mannkynið verði tegund margra reikistjarna er tölfræðilega óhjákvæmilegt að það muni þurrkast út. Hvort sem það gerist á næstu áratugum eða jafnvel milljörðum ára, þá munum við deyja og jörðin þurrkast út. 11. desember 2021 08:01
Vilja koma kvikmyndaveri út í geim á næstu árum Forsvarsmenn breska fyrirtækisins Space Entertainment Enterprise hafa tilkynnt áætlanir um að framleiða nýja viðbót við Alþjóðlegu geimstöðina. Þessa viðbót á að skjóta út í geim og nota sem sérstakt kvikmyndatökuver. 27. janúar 2022 10:18
Geimfari náði mynd af þotu á flugi Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hafa annað sjónarhorn á Jörðina en við hin. Það sést glögglega á ljósmynd sem bandaríski geimfarinn Megan McArthur náði úr geimstöðinni á dögunum. 11. október 2021 23:30
„Ég vil horfa á þennan hnött og meta fegurð hans“ Leikarinn William Shatner fer út í geim á morgun. Það mun hann gera með þremur öðrum geimförum um borð í geimfarinu NS-18. Hinum níræða Shatner og geimförunum verður svo skotið á loft af starfsmönnum Blue Origins. 12. október 2021 15:49