Körfubolti

Jón Axel og félagar á toppinn eftir öruggan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Axel Guðmundsson og félagar eru nú á toppi J-riðils.
Jón Axel Guðmundsson og félagar eru nú á toppi J-riðils. FIBA

Jón Axel Guðmundsso og félagar hans í þýska liðinu Crailsheim Merlins unnu öruggan 20 stiga sigur er liðið tók á móti Kyiv Basket í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld, 82-62.

Heimamenn í Crailsheim Merlins settu tóninn strax í fyrsta leikhluta, en liðið skoraði 28 stig gegn aðeins átta stigum gestanna. Meira jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 39-23, Merlins í vil.

Síðari hálfleikurinn var mun jafnari en sá fyrri. Jón Axel og félagar héldu gestunum í hæfilegri fjarlægð og unnu að lokum öruggan 20 stiga sigur, 82-62.

Jón Axel skoraði níu stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í liði Merlins sem situr nú á toppi J-riðils með þrjá sigra í fimm leikjum, en hefur leikið tveimur leikjum meira en Reggiana sem hefur ekki enn tapað leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×