Segir nýjustu bylgju Covid bera Hong Kong ofurliði Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2022 09:51 Íbúar Hong Kong standa í röð eftir skimun. Myndin var tekin í morgun. AP/Vincent Yu Carrie Lam, leiðtogi Hong Kong, segir nýjustu bylgju Covid-19 sem gengur nú yfir eyjuna vera að bera heilbrigðiskerfið þar ofurliði. Smituðum hefur fjölgað hratt þar á undanförnum dögum en í byrjun mánaðarins greindust um hundrað smitaðir á hverjum degi en í gær greindust 1.300.
Í dag var opinberað að 2.071 greindust smitaðir á undanförnum sólarhring, samkvæmt frétt South China Morning Post. Þá segir í frétt Reuters fréttaveitunnar að dauðsföll séu enn tiltölulega fá í Hong Kong en um níutíu prósent sjúkrarýma vegna Covid eru í notkun. Frá upphafi faraldursins hafa á þriðja tug þúsund manna smitast af Covid-19 og færri en tvö hundruð hafa dáið. Sérfræðingar vara við því að nýsmituðum geti fjölgað í allt að 28 þúsund á dag í næsta mánuði og er óttast sérstaklega um óbólusett eldra fólk. Sóttvarnarhótel eru einnig í fullri notkun. Lam segist ætla að leita til yfirvalda í Kína eftir aðstoð vegna bylgjunnar. Sú aðstoð gæti verið í formi skimunar, hlífðarbúnaðar og annars. Harðar sóttvarnarreglur eru í gildi í Hong Kong. Hvergi mega fleiri en tveir koma saman og er flestum tegundum fyrirtækja lokað. Þá eru harðar aðgerðir í gildi á landamærum en í um tvö ár hefur Hong Kong verið nánast lokuð.
Hong Kong Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira