Þó mikil kátína hafi ríkt í setti á Suðurlandsbraut með ítarlega yfirferð Theódórs Inga Pálmason eftir leik (sem sjá má í spilaranum hér að neðan) þá ákváðu þeir Stefán Árni Pálsson, Bjarni Fritzson og Jóhann Gunnar Einarsson að greina leikinn örlítið betur.
„Við tókum eftir því, Stjörnumenn neituðu bara að koma sér inn í leikinn,“ sagði Stefán Árni, þáttastjórnandi. Bjarni tók undir það.
„Alltaf þegar þeir áttu tækifæri á að minnka í þrjú mörk og detta inn í leikinn þá kom eitthvað, klikkuðu á dauðafæri, léleg sending eða tapaður bolti. Manni leið allan leikinn svolítið eins og Stjarnan gæti ekki unnið þennan leik.“
„Þetta var týpískt fyrir lið sem er með sjálfstraustið í núlli að spila við lið sem er með sjálfstraustið í botni. Þú færð 2-3 sénsa en það er bara eitthvað sem er ekki í gangi. Þetta er svo rosalega lélegt, stíga á línu – kasta boltanum út af, þetta eru bara svo léleg gæði í þessu hjá þeim,“ bætti Jóhann Gunnar Einarsson við.
„Þú ert líka með hvernig leikurinn byrjaði: Valsmenn voru bara BÚMM! Á meðan Stjarnan var ekki klár. Þó það hafi munað 1-2 mörkum í hálfleik held ég að Stjarnan hafi ekki liðið vel. Skildu ekki hvernig þeir væru inn í leiknum,“ sagði Bjarni í kjölfarið.
Hvað er að hjá Stjörnunni?
Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í röð. Hvað er að í Garðabænum?
„Björgvin Hólmgeirsson er meiddur, Gunnar Steinn var ekki með,“ sagði Stefán Árni áður en Bjarni fékk orðið.
„Eitt sem ég hef tekið eftir er hversu oft þeir eru byrjaðir að róa í seinni bylgju og hröðum upphlaupum. Er eins og þeir séu smá hikandi, og í handbremsunni. Hef tekið eftir þessu sem og hvað allir eru ekki nógu góðir. Þeir eru ekki að grípa tækifærin til að vinna. Svo finnst mér þeir alltof mikið tala um „fyrir áramót.“ Það er búið, þeir áttu fullt af slökum leikjum, þeir redduðu sér og unnu ótrúlega vel úr því. Held að þeir ættu að hætta að tala um „fyrir áramót“ og tala um það sem er að fara gerast og hvernig þeir ætla að standa sig núna.“
Svipmyndir úr leik Vals og Stjörnunnar ásamt umfjöllun Seinni bylgjunnar um leikinn má sjá í spilaranum hér að neðan.
Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.