Innlent

Tveir handteknir fyrir að ráðast á dyraverði í miðbænum

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Lögreglan að störfum í miðbænum í nótt. 
Lögreglan að störfum í miðbænum í nótt. 

Ráðist var á dyraverði í miðbæ Reykjavíkur í nótt, tilkynnt var um ofurölvi einstaklinga og skemmtistað var lokað sem reyndist vera með útrunnið rekstrarleyfi. 

Klukkan hálf þrjú í nótt var ráðist á dyraverði á skemmtistað í miðbænum en tveir voru handteknir á vettvangi vegna málsins og vistaðir í fangageymslu. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort dyraverðirnir hafi slasast við árásina en málið er til rannsóknar. 

Þá sinntu lögreglumenn frá lögreglustöð 4, sem sinnir Grafarvogi, Mosfellsbæ og Árbæ , útkalli þar sem tilkynnt var að ráðist hafi verið á dyravörð. Þegar lögregla kom á staðinn gat aðilinn ekki tjáð sig vitsmunalega og neitaði að segja til nafns. Var hann þá vistaður í fangaklefa. 

Á þriðja tímanum í  nótt var tilkynnt um að maður væri að veitast að fólki skammt frá miðbænum. Maðurinn var vistaður í fangaklefa grunaður um gripdeild, eignaspjöll og brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg. 

Fyrr um nóttina, skömmu fyrir miðnætti, hafði lögregla afskipti af dyravörðum á skemmtistað í miðbænum en þeir reyndust ekki vera með réttindi. Þá hafði lögregla eftirhald með skemmtanahaldi og reyndist rekstrarleyfi eins skemmtistaðar útunnið en staðnum var lokað í framhaldinu. 

Nokkuð var um ölvaða einstaklinga í miðbænum en á tíunda tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um ofurölvi mann sem var að reyna að komast inn í biðfreiðar í austurbænum. 

Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að ekki væri um að ræða tilraun til innbrots heldur var maðurinn aðeins of fullur til að komast heim og aðstoðaði lögregla hann við það. 

Klukkan hálf eitt í nótt hafði lögregla síðan afskipti af ofurölvi manni í miðbænum sem braut bílrúðu en lögreglu reyndist ómögulegt að ræða við manninn. Var maðurinn þá handtekinn og vistaður í fangaklefa. 


Tengdar fréttir

Mikið um ölvunartengd mál í miðbænum og víðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöld og í nótt. Líkamsárásir, tilkynningar um ölvaða einstaklinga, grunsamlegar mannaferðir og akstur undir áhrifum voru meðal verkefni næturinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×