Iryna Vereshchuk, aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu, greindi frá því fyrr í dag að um 100 þúsund manns vildu yfirgefa borgina en að þeim hafi verið meinað að fara. Hún ítrekaði ákall um að öruggar flóttaleiðir út úr borginni yrðu opnaðar og að Rússar láti af árásum sínum á almenna borgara, eitthvað sem Rússar neita að hafa gert.
WARNING: GRAPHIC CONTENT Ukrainian President Zelenskiy said it would not be possible to negotiate an end to the war without meeting Russian President Putin. The city of Mariupol has become a focal point of Russia's assault and lies largely in ruins https://t.co/6yCv8pYqjr pic.twitter.com/0wJKJLMQCM
— Reuters (@Reuters) March 22, 2022
Rúmlega 400 þúsund íbúar voru í borginni þegar árásir Rússa hófust og hafa íbúar ekki aðgengi að mat, vatni eða lyfjum. Flestar tilraunir til að opna öruggar flóttaleiðir hafa mistekist undanfarnar vikur en einhver fjöldi hefur þó flúið borgina. Talið er að um 200 þúsund manns séu eftir í borginni.
Rússar hafa ráðist á byggingar sem hýsa almenna borgara, til að mynda fæðingardeild sjúkrahúss og leikhús. Björgunarsveitarmenn í Maríupól hafa ekki getað unnið í rústum leikhússins í nokkra daga vegna harðra bardaga og stórskotaliðsárása. Leikhúsið hrundi í loftárás í síðustu viku og er talið að rúmlega þúsund manns hafi leitað sér skjóls í kjallara þess.
In Mariupol, Azov Battalion destroyed 4 Russian tanks and several units of enemy armored fighting vehicles.
— Hromadske Int. (@Hromadske) March 22, 2022
Today, the Ukrainian military also shot down one occupiers' plane which was destroying Mariupol in recent weeks pic.twitter.com/I8SgEkrH9l
Úkraínsk yfirvöld hafa neitað að verða við kröfum Rússa um að leggja niður vopn í borginni og barist gegn rússneskum hersveitum af krafti, meðal annars með þvi að skjóta niður rússneska herflugvél sem sveimaði yfir borginni í dag. Rússneskar hersveitir eru sagðar byrjaðar að skjóta á borgina úr Azov-hafi.
Segir Úkraínumenn búa við helvíti
Í ákalli sínu fyrir ítalska þinginu í dag ítrekaði Selenskí mikilvægi þess að Ítalir beiti Rússa hörðum refsiaðgerðum og styðji önnur ríki við slíkt. „Þessu stríði verður að ljúka eins fljótt og auðið er. Komum á friði. Fjarlægjum óvinveitta hermenn frá Úkraínu,“ sagði forsetinn.
Að minnast kosti 117 börn hafa dáið frá því að innrás Rússa hófst og fleiri en 155 særst, segja yfirvöld í Úkraínu. 548 skólar og menntastofnanir eru sagðar hafa orðið fyrir árásum Rússa og 72 gjöreyðilagst. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) segist hafa staðfest 62 árásir á heilbrigðisstofnanir í Úkraínu. Fimmtán hafi látið lífið í árásunum og að minnsta kosti 37 særst.
Minnst 3,5 milljónir manna hafa flúið frá Úkraínu síðan innrás Rússa hófst þann 24. febrúar. Til viðbótar eru 6,5 milljónir sagðar á vergangi innan landsins.
Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Úkraínumenn búa við helvíti vegna innrásar Rússa og varar við því að staðan eigi aðeins eftir að versna. Á blaðamannafundi í New York í dag sagði hann stríðið tilgangslaust og að það væri nauðsynlegt að binda endi á það sem fyrst.