Dúettinn samanstendur af þeim Helenu Hafsteinsdóttur og Rósu Björk Ásmunds en áður hefur heró gefið út lög á borð við Stay for Me og Follow Me, sem sátu í nokkrar vikur á vinsældarlista rásar tvö.
Sorry (Lofa Veit Betur) er innblásið af heimahögunum og samið á nútímalegri en ljóðrænni íslensku. Innblástur er meðal annars fenginn frá íslenskri dægurlagatónlist. Ragnar Smári Sigurþórsson annaðist upptökur á myndbandinu og Helena leikstýrði sjálf.
Helena og Rósa eru fæddar árið 1997 og hafa þekkst frá barnsaldri. Þær sóttu báðar leiklistarskólann The American Academy of Dramatic Arts. Helena útskrifaðist úr aðsetri skólans í Los Angeles árið 2019 en Rósa frá New York ári síðar.
Þegar kórónuveirufaraldurinn skall á héldu þær heim til Íslands og hafa þær unnið saman að tónlist síðan þá.