Skoðun

Af hverju stefnumótun um ferðamál á höfuðborgarsvæðinu?

Björn H. Reynisson skrifar

Undanfarið eitt og hálft ár hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu á vettvangi SSH unnið að því að auka samvinnu á sviði ferðamála. Þessi vinna hefur verið leidd áfram af ráðgjafahóp sem samanstendur af fulltrúum sveitarfélaganna og atvinnulífsins á höfuðborgarsvæðinu. Sá hópur mat það sem bestan kost að farið væri í að móta sameiginlega stefnumótun er varðar ferðamál og leggja grunninn að undirbúningi stofnun Áfangastaðastofu.

Nú hafa allir landshlutar nema höfuðborgarsvæðið stofnað Áfangastaðastofu sem byggðar eru á grunni markaðsstofa landshlutanna. Að samningi um Áfangastaðastofu koma ráðuneyti ferðamála, landshlutasamtök og Ferðamálastofa. Taka skal fram að ekki er verið að finna upp hjólið hér heldur hafa allar borgir sem við berum okkur saman við nú þegar stofnað áfangastaðastofur eins og Visit Copenhagen, Visit Stockholm, My Helsinki og I am Amsterdam. Eina formlega samstarf sveitarfélaga í málaflokknum hefur verið varðandi markaðssetningu undir Visit Reykjavík sem leitt hefur verið af Höfuðborgarstofu Reykjavíkur. Hófst það samstarf árið 2015 með herferðinni „Reykjavík Loves“.

Af hverju Áfangastaðastofa?

Áfangastaðastofa (e. Destination Management Organisation) er svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Meginhlutverk Áfangastaðastofu er að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi (sjá skilgreiningu á vef Ferðamálastofu).

Helsta hlutverk slíkrar stofu er að bera ábyrgð á gerð áfangastaðaáætlunar, sem er sameiginleg stefnuyfirlýsing svæðisins um hvað áfangastaðurinn stendur fyrir, óháð bæjarmörkum sveitarfélaga. Einnig heldur stofan utan um markaðssetningu svæðisins sem flest m.a. í utanumhaldi vefsíðna, samfélagsmiðla, þátttöku á sýningum og móttöku blaðamanna og áhrifavalda. Þá ber stofan ábyrgð á þróunarverkefnum hvort sem um ræðir nýsköpunarverkefni eða markaðsþróunarverkefni. Það er því mikilvægt að allir hagaðilar komi saman og vinni þessu verkefni framgang.

Af hverju eiga fyrirtæki að taka þátt í Áfangastaðastofu?

Forsenda árangurs af slíkri stofu er samvinna við fyrirtæki á svæðinu. Fyrirtækin geta haft mikið um það að segja hvernig þróun og áherslur svæðisins verða. Þau geta haft áhrif á og átt hlutdeild í stefnumótun svæðis, markaðssetningu, sýnileika fyrirtækja í markaðsefni, uppbyggingu áningarstaða, aðgangi að tengslaneti, skýrslum og rannsóknum, námskeiðum, þátttöku í blaðamannaferðum og margt fleira.

En hver er heildarávinningurinn af stofnun Áfangastaðastofu? Jú ávinningurinn er sterkari ímynd og vitund áfangastaðar, sameiginlegar áherslur í verkefnum, betri nýting á fjármunum, sérhæfð þekking og áhrif á ásýnd, orðspor og vitund fyrir áfangastaðnum. Það er því mikið undir að við vinnum þetta saman!

Vertu með frá upphafi!

Ferðamálaþing verður haldið miðvikudaginn 27. apríl næstkomandi en þar verður farið yfir lykilþætti Áfangastaðastofu. Nánari upplýsingar á www.ssh.is

Höfundur er verkefnastjóri áfangastaðarins Höfuðborgarsvæðið.




Skoðun

Sjá meira


×