Víkingur fékk KA í heimsókn í Víkinni. Íslands- og bikarmeistararnir þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að missa ekki liðin fyrir ofan sig of langt frá sér. Sigur vannst þökk sé sigurmarki Viktors Örlygs þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma, lokatölur 2-1 í Víkinni.
Ísak Snær getur ekki hætt að skora en hann skoraði bæði mörk Breiðabliks er liðið vann 2-1 sigur á Leikni Reykjavik í Breiðholtinu. Bæði mörkin skoraði hann með afar snotrum afgreiðslum. Róbert Hauksson skoraði gott skallamark fyrir Leikni en það dugði ekki til og Blikar hafa nú unnið alla átta leiki sína í deildinni.
Fram kvaddi Safamýrina með stæl en liðið mun nú loks færa sig upp í Úlfarsárdal þar sem nýr heimavöllur liðsins er. Fram vann 3-2 sigur á nágrönnum sínum í Val þökk sé tvennu frá Guðmundu Magnússyni og sigurmarki Jannik Holmsgaard. Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk Vals sem voru manni færri allan síðari hálfleikinn þar sem Birkir Heimisson fékk tvívegis að líta gula spjaldið í þeim fyrri.
KR gerði góða ferð í Hafnafjörð þar sem liðið vann 3-2 útisigur á FH. Kjartan Henry Finnbogason kom KR í 2-0 áður en Kristinn Freyr Sigurðsson minnkaði muninn, staðan 1-2 í hálfleik. Finnur Orri Margeirsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark snemma í síðari hálfleik og staðan því 3-1 gestunum í vil áður en Logi Hrafn Róbertsson náði að minnka muninn í blálokin.
Keflavík gerði góða ferð á Skipaskaga þar sem liðið vann öruggan 2-0 útisigur á ÍA. Finnski miðvörðurinn Dani Hatakka kom gestunum yfir eftir ævintýralegan vandræðagang í vörn heimamanna í kjölfar hornspyrnu. Kian Paul James Williams tvöfaldaði forystuna um miðbik síðari hálfleiks með þrumuskoti og þar við sat.
Hægri bakvörðurinn Óli Valur Ómarsson skoraði eina mark Stjörnunnar er liðið vann 1-0 sigur á nýliðum ÍBV í Garðabæ. Ekkert verður tekið af Óla Val þar sem markið var stórglæsilegt en varnarleikur gestanna var ekki til útflutnings.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.