Washington Post segir samkomulagið fela í sér að ríki verða hvött til að taka upp svokölluð „Red flag“ lög en þau fela í sér að yfirvöld geti tekið skotvopn af fólki sem talið er geta ógnað sjálfu sér eða öðrum. það felur einnig í sér að þegar 18 til 21 árs gamalt fólk reynir að kaupa hálfsjálfvirka riffla, megi skoða refsisögu þeirra í heild sinni.
Hingað til hefur ekki mátt skoða gögn frá því ungir byssukaupendur voru táningar.
Samkomulagið felur ekki í sér að ungu fólki verið alfarið meinað að kaupa riffla sem þessa fyrir 21 árs aldur. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, þingmenn Demókrataflokksins og nokkrir Repúblikanar hafa lýst yfir stuðningi við slíkar reglur en þær eru þegar í gildi varðandi skammbyssukaup.
Í langflestum mannskæðum skotárásum Bandaríkjanna undanfarin ár hafa hálfsjálfvirkir rifflar verið notaðir og þá oft með magasínum sem geta geymt þrjátíu skot eða jafnvel fleiri. Samkomulagið felur ekki í sér að banna slík magasín.
Samkvæmt samkomulaginu gætu yfirvöld Bandaríkjanna einnig aukið fjárútlát til geðheilbrigðismála og sömuleiðis aukið fjárútlát vegna öryggisgæslu á skólalóðum.
Fólk sem hefur verið dæmt fyrir heimilisofbeldi eða verið beitt nálgunarbanni, myndi samkvæmt samkomualginu hafa takmarkaðan aðgang að skotvopnum.
NEW Gun deal is out. pic.twitter.com/wufZ9RcdFb
— Jake Sherman (@JakeSherman) June 12, 2022
Öldungadeildarþingmennirnir Chris Murphy og Kyrsten Sinema frá Demókrataflokknum og John Cornyn og Thom Tillis frá Repúblikanaflokknum komu að samkomulaginu fyrir hönd flokkanna. Ef og þegar lagafrumvarp verðu samið, mun það þurfa atkvæði sextíu þingmanna af hundrað til að verða samþykkt en öldungadeildin skiptist jafnt milli flokka, 50-50.
Tíu þingmenn Repúblikanaflokksins skrifa undir samkomulagið svo það virðist líklegt að verði skrifað frumvarp, muni það njóta stuðnings nægilega margra þingmanna.
Í frétt Politico segir að frumvarpsskrif gætu tekið nokkurn tíma. Til að mynda hafi það tekið rúmar sex vikur eftir viðræður flokkanna um innviðafrumvarp sem fór í gegnum þingið í fyrra.
Frumvarpið þyrfti einnig að fara í gegnum fulltrúadeildina þar sem Demókratar eru í meirihluta. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, sagði fyrir helgi að hún myndi styðja hvaða frumvarp sem kæmist í gegnum öldungadeildina. Það væri sama þó Demókratar næðu ekki fram sínum helstu áherslum, svo lengi sem frumvarpið hjálpaði við að bjarga mannslífum.
Vill skrifa undir sem fyrst
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir í yfirlýsingu að hann vilji skrifa undir lagafrumvarp sem fyrst. Jafnvel þó það muni ekki innihalda allt sem hann vilji ná fram yrði frumvarp á grunni þessa samkomulags það umfangsmesta sem færi gegnum þingið í áratugi.
„Með þverpólitískum stuðningi er engin afsökun fyrir töfum, og engin ástæða fyrir því að það geti ekki farið hratt í gegnum þingið. Hvern dag sem ekkert gerisit deyja fleiri börn í þessu landi: Því fyrr sem frumvarpið lendir á mínu borði, því fyrr get ég skrifað undir það og því fyrr getum við notað þessar aðgerðir til að bjarga mannslífum,“ er haft eftir Biden í yfirlýsingu Hvíta hússins.