Húsleit gerð hjá dönsku dótturfélagi Eimskips Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. júní 2022 20:57 Dönsk samkeppnisyfirvöld eru að rannsaka háttsemi í landflutningum í Danmörku. Vísir/Vilhelm Danska samkeppniseftirlitið framkvæmdi í dag húsleit hjá Atlantic Trucking, dönsku dótturfélagi í eigu Eimskipafélags Íslands, í Álaborg í Danmörku.
Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til kauphallar í kvöld. Þar kemur fram að húsleitin snúi að starfsemi Atlantic Trucking. Félagið er dótturfélag Eimskip Holding, sem er í eigu Eimskipafélags Íslands. Húsleitin var framkvæmd á grundvelli dómsúrskurðar. Í tilkynningunni segir að húsleitin sé hluti af rannsókn í háttsemi í landflutningum í Danmörku. Rannsóknin hafi tekið til fleiri félaga á þeim markaði. Tilgangur húsleitarinnar hafi verið að rannsaka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum danskra samkeppnislaga. Unnið sé að því að veita dönskum samkeppnisyfirvöldum aðgang að umbeðnum upplýsingum. Í tilkynningunni kemur fram að Eimskipafélagið hafi ekki ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn dönskum samkeppnislögum í starfsemi Atlantic Trucking, sem hafi um fimm prósent markaðshlutdeild í gámaflutningum á þessum markaði.
Samkeppnismál Danmörk Kauphöllin Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira