Innlent

Slökkvi­liðs­stjórar sam­þykktu sinn fyrsta kjara­samning

Atli Ísleifsson skrifar
Kosningaþátttakan var 71,74 prósent.
Kosningaþátttakan var 71,74 prósent. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða hafa samþykkt sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga, en rafrænni kosningu meðal félagsmanna um samninginn lauk í gær.

Í tilkynningu frá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir að samningurinn hafi verið undirritaður þann 29. júní síðastliðinn, en alls greiddu 33 atkvæði um samninginn. Já sögðu 31, eða um 94 prósent, en tveir greiddu atkvæði gegn samningnum. Enginn sat hjá.

Þeir sem fengu að kjósa um samninginn voru félagsmenn LSS sem sinna stöðugildum stjórnenda slökkviliða og greiða iðgjald sem nemur 20 prósent starfshlutfalli eða meira. Kosningaþátttakan var 71,74 prósent.

„Þetta er fyrsti samningurinn sem slökkviliðsstjórar gera fyrir sig en áður var einungis einn kjarasamningur sem gilti fyrir alla félagsmenn sem unnu fyrir sveitarfélögin. Samningsaðilar voru sammála í síðustu kjarasamningaviðræðum að það væri óeðlilegt að undirmenn væru að semja um kjör sinna yfirmanna. Samhliða þessum kjarasamningi er búið að útfæra greiðslu vegna bakvakta sem hefur verið mikil óánægja með á meðal slökkviliðstjóra og búið að endurmeta störf þeirra hjá verkefnastofu Starfsmats, sem er stofnun sem mælir reynslu og menntun til launa. Þessi samningur hefur sama gildistíma og almenni kjarasamningurinn og gildir því til 30. september 2023,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×