„Ég var komin í gott stand á EM“ Sindri Sverrisson skrifar 2. september 2022 14:00 Sara Björk Gunnarsdóttir vann sig inn í byrjunarlið Íslands að nýju aðeins átta mánuðum eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn, og spilaði alla þrjá leikina á EM. VÍSIR/VILHELM Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði í fótbolta segist vera á góðu róli fyrir leikina við Hvíta-Rússland í dag og Holland á þriðjudag, sem gætu skilað Íslandi beint á HM í fyrsta sinn.
Sara lék sína fyrstu alvöru leiki á sjálfu Evrópumótinu í júlí, eftir að hafa eignast sitt fysta barn í nóvember. Hún hefur svo náð að spila nokkra leiki með Juventus nú í upphafi leiktíðar, bæði í ítölsku A-deildinni og í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Aðspurð hvort að hún væri enn á uppleið í átt að sínu besta formi, eða hvort hún hefði þegar verið búin að ná þangað á EM, svaraði Sara: „Ég var komin í gott stand á EM. Ég var ekki í slæmu standi. Mér leið vel og ég var búin að æfa vel. Ég er komin á gott ról líka núna, búin að vera að spila leiki með Juventus, svo ég er á góðu róli og líður vel.“ Klippa: Sara Björk er á góðu róli Sara var í byrjunarliði Íslands í öllum þremur leikjunum á EM, á tólf daga tímabili, en var skipt út af í þeim öllum. Hún hefur svo leikið tvo keppnisleiki í byrjunarliði fyrir Juventus, þar af annan í níutíu mínútur, og komið inn á sem varamaður í einum leik. Sara slær eigið landsleikjamet með hverjum landsleik sem hún spilar en leikurinn við Hvíta-Rússland í kvöld verður 143. A-landsleikur fyrirliðans, sem skorað hefur 22 mörk í þessum leikjum.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Landslið kvenna í fótbolta Fótbolti Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Sjá meira