Í viðtali við People segist hann hafa viljað vera búinn að vinna í sínum málum og ekki teljast sem virkur alkóhólisti áður en hann opnaði sig um fíknina. Nú gerir hann það í nýju bókinni sinni Friends, Lovers and the Big Terrible Thing sem kemur út um mánaðamótin. Hann segir allt koma fram í bókinni og að hann sé ekki að sleppa neinu.
Tvö prósent líkur á því að lifa af
Matthew eyddi fimm mánuðum á sjúkrahúsi og þurfti að nota stóma í níu mánuði eftir að ristillinn hans rofnaði fyrir fjórum árum. Á þeim tíma sagðist hann opinberlega hafa lent í rofi á meltingarvegi en ástæðan og alvarleiki málsins var ekki gefin upp. Hann segir læknana hafa sagt fjölskyldunni sinni að hann ætti tvö prósent líkur á því að lifa af þegar hann var lagður inn á spítalann.
„Ég var settur í vél sem kallast ECMO-dæla, sem sér um alla vinnuna fyrir hjarta þitt og lungu. Það er kallað Hail Mary. Enginn lifir það af," segir hann um vélina.
Hinir fjórir létust
„Það voru fimm manns settir á ECMO-dælu þetta kvöld, hinir fjórir dóu og ég lifði af,“ segir hann. Hann telur vera einhverja ástæðu fyrir því að hann hafi lifað af og segist vilja nýta tækifærið og hjálpa öðrum sem eru að fást við fíkn.
Leikarinn er með fjórtán ör á maganum eftir skurðaðgerðir og segir þau vera góða áminningu um það að halda sig á beinu brautinni. „Sjúkraþjálfarinn minn sagði: „Næst þegar þú hugsar um að taka Oxycontin, hugsaðu þá bara um að vera með stóma út lífið þitt,“ rifjar hann upp.
Vinir
Hann tók við hlutverkinu sem Chandler Bing í þáttunum Friends þegar hann var tuttugu og fjögurra ára gamall. Hann segir fíknina hafa verið rétt að byrja þá en tíu árum síðar hafi það verið orðið stórt vandamál. Hann segist hafa verið edrú við tökur á níundu seríu þáttanna en það árið var hann tilnefndur fyrir leik sinn í þáttunum.
Í viðtalinu rifjar hann upp að á einum tímapunkti hafi hann verið að taka 55 Vicodin töflur á dag og hafi verið búinn að léttast um 58 kíló. Hann segist ekki hafa getað stoppað en leikarinn hefur farið fimmtán sinnum í meðferð. Hann segir samleikara sína hafa verið skilningsríka og þolinmóða.

Hann lýsir vináttunni á tökustaðnum við hefð mörgæsa. Þar sem þær umkringja veikar mörgæsir og labba með hana á milli sín og halda henni uppi, þar til hún getur gengið aftur sjálf. Hann segist vera á góðum stað í dag og vonar að bókin færi öðrum von því hann sé enn hér þrátt fyrir allt saman.