Liz Truss yfirgaf forsætisráðherrabústaðinn í morgun rúin trausti, óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá upphafi mælinga, eftir aðeins sjö vikur við völd. Hún bar sig þó vel í kveðjuræðunni áður en hún hélt á fund konungs til að segja formlega af sér, sagðist sannfærðari nú en áður um að mæta þyrfti efnahagsvanda Breta af djörfung.

„Í því felst að lækka skatta svo fólk haldi eftir meira af tekjum sínum. Við þurfum meiri hagvöxt sem skapar meira starfsöryggi, hærri tekjur og fleiri tækifæri fyrir börn okkar og barnabörn,“ sagði Truss enn á því að lækka ætti skatta.
En það voru einmitt hugmyndir hennar um miklar skattalækkanir sem hleyptu öllu í bál og brand í bresku efnahagslífi. Lífeyrissjóðir voru á barmi gjaldþrots, pundið féll og Englandsbanki greip inn í.

Rishi Sunak gekk á fund Karls III konungs um leið og Truss hafði sagt af sér. Hann er 42 ára og yngsti forsætisráðherra Bretlands í 200 ár og sá fyrsti sem ekki er hvítur og kristinnar trúar og fimmti leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra á sex árum. Hann þakkaði Truss og sagði hana ekki hafa haft rangt fyrir sér í að efla þyrfti hagvöxt.

„Tiltekin mistök voru gerð. Þau voru hvorki gerð af illvilja né af illum hvötum. Þvert á móti, en mistök engu að síður. Ég var kosinn leiðtogi flokks míns og forsætisráðherra ykkar til að ráða bót á þeim. Og sú vinna hefst nú þegar,“ sagði Sunak rétt áður en hann gekk inn um dyrnar á Downingstræti 10.
Og Sunak talaði líka til stjórnartíðar Borisar Johnson sem hrökklaðist frá völdum í sumar vegna ítrekaðra lyga að þingi og þjóð. Hann ætlaði að sameina þjóðina með aðgerðum.
„Þessi ríkisstjórn mun starfa af heilindum, með fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi á öllum stigum,“ sagði Rishi Sunak.