Botnliðið lét Fram hafa fyrir sér Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. nóvember 2022 17:56 Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði tvö mörk í torsóttum sigri Fram gegn Herði. Toppbaráttulið Fram þurfti að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti stigalausa Harðverja í Olís-deild karla í handbolta í dag. Gestirnir unnu þó að lokum nauman eins marks sigur, 31-32, og heldur sér því í öðru sæti deildarinnar.
Eins og lokatölurnar gefa til kynna var leikurinn jafn og spennandi frá upphafi til enda. Heimamenn hafa átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabils og eru eins og áður segir án stiga. Það voru þó Harðverjar sem reyndust sterkari á lokamínútum fyrri hálfleiks og liðið fór með tveggja marka forskot inn í hálfleikshléið, staðan 18-16. Gestirnir í Fram voru þó fljótir að snúa taflinu sér í hag í síðari hálfleik og liðið skoraði fyrstu þrjú mörkin eftir hlé og náði forystunni af heimamönnum. Framarar náðu mest þriggja marka forskoti í síðari hálfleik og unnu að lokum nauman eins marks sigur, 31-32. Fram er nú með 13 stig í öðru sæti Olís-deildarinnar þegar liðið hefur leikið níu leiki. Framarar eru því einu stigi á eftir toppliði Vals sem hefur leikið einum leik minna. Harverjar sitja hins vegar sem fastast á botninum án stiga.
Handbolti Olís-deild karla Fram Hörður Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira