Norska Elkjøp bakkar út og gefur Amnesty auglýsingaplássin í tengslum við HM Atli Ísleifsson skrifar 17. nóvember 2022 16:25 Elkjøp segist munu standa við gerða samninga við TV2 en gefa Amnesty auglýsingaplássin. Elkjøp Fáeinum dögum fyrir HM í knattspyrnu í Katar hefur norski raftækjasölu risinn Elkjøp ákveðið að hætta sem kostunaraðili HM-útsendinga sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Fyrirtækið mun þess í stað gefa mannréttindasamtökunum Amnesty auglýsingaplássin.
Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. ELKO á Íslandi starfar undir sérleyfi frá Elkjøp A/S og er einn fjögurra kostunaraðila útsendinga RÚV í tengslum við heimsmeistaramótið að þessu sinni. Aðspurður um málið segir Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO á Íslandi, að fyrirtækið hafi ekki tekið neina ákvörðun varðandi þeirra auglýsingar í tengslum við útsendingar frá HM á RÚV. Gríðarmikið hefur verið fjallað um mannréttindabrot í Katar og sér í lagi á verkafólki sem stóð að smíði leikvanga landinu þar sem leikirnir verða spilaðir. Verða ekki sýnilegir Í frétt Verdens Gang segir að stjórnendur Elkjøp hafi ákveðið að fyrirtækið verði ekki virkur og sýnilegur kostunaraðili útsendinga frá mótinu. Ákvörðunin nú sé grundvölluð á þeim gildum sem félagið vilji standa fyrir en sömuleiðis að tillit sé tekið til TV2, samstarfsaðila Elkjøp til margra ára. Niðurstaðan hafi verið að virða gerða samninga við TV2 en að gefa hluta auglýsingaplássanna til mannréttindasamtakanna Amnesty. „Við höfum boðið Amnesty að fylla þau [auglýsingaplássin]. Það þýðir að Amnesty verður sýnilegt á TV2 á meðan á mótinu stendur og að boðskapur þeirra heyrist almennilega,“ segir Madeleine Schøyen Bergly, samskiptastjóri Elkjøp við VG. Fjórir kostunaraðilar Kostunaraðilar fyrir útsendingar RÚV vegna heimsmeistaramótsins eru fjórir að þessu sinni – Netgíró, ELKO, Lottó/Getraunir og KIA. Stjórnendur þeirra norsku sjónvarpsstöðva sem sýna frá HM í norsku sjónvarpi – NRK og TV2 – sögðust hins vegar hafa fundið fyrir því að auglýsendur væru meira hikandi en oft áður vegna umræðunnar um mannréttindabrot í Katar. Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, sagði stöðuna í tenglum við auglýsingasölu RÚV vegna HM hins vegar í raun vera ágæta þegar Vísir ræddi við hann í byrjun mánaðar. Hann sagðist þá ekki hafa orðið sérstaklega var við að erfiðara hafi reynst að fá aðila til að auglýsa í tengslum við útsendingar RÚV frá heimsmeistaramótinu. Staðan á sölunni ætti þó eftir að koma betur í ljós þegar nær drægi mótinu.
Noregur Auglýsinga- og markaðsmál Verslun HM 2022 í Katar Mannréttindi Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Átti að hreinsa upp skítinn en fær nú hæli í Katar „Einbeitið ykkur að fótboltanum“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, í bréfi til þátttökuþjóða á HM í Katar tæpum þremur vikum fyrir upphafsflaut mótsins sem hefst á sunnudaginn kemur. FIFA hefur dregið í land með ýmis loforð fyrir mótið og lítið pláss virðist vera fyrir mannréttindamál hjá forseta sem á nú hæli í gestgjafaríkinu. 17. nóvember 2022 10:00 Mest lesið Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira
Átti að hreinsa upp skítinn en fær nú hæli í Katar „Einbeitið ykkur að fótboltanum“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, í bréfi til þátttökuþjóða á HM í Katar tæpum þremur vikum fyrir upphafsflaut mótsins sem hefst á sunnudaginn kemur. FIFA hefur dregið í land með ýmis loforð fyrir mótið og lítið pláss virðist vera fyrir mannréttindamál hjá forseta sem á nú hæli í gestgjafaríkinu. 17. nóvember 2022 10:00