Efast um að það sé nokkuð gaman að vera leikmaður Stjörnunnar í dag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. desember 2022 23:30 Strákarnir í Körfuboltakvöldi voru sammála um það að það væri gaman að horfa á Robert Turner spila körfubolta, en ekki eins og Stjörnuliðið er að spila í dag. Vísir/Vilhelm „Ég held að það sé ekkert voðalega skemmtilegt að vera leikmaður í Stjörnunni núna, það er bara þungt yfir þessu einhvernveginn,“ sagði Kristinn Geir Friðriksson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, í síðasta þætti þar sem meðal annars var farið yfir gengi Stjörnuliðsins undanfarnar vikur.
Stjörnumenn hafa nú tapað tveimur leikjum í röð og alls hefur liðið tapað þrem af seinustu fimm leikjum sínum. Hermann Hauksson, kollegi Kristins, var sammála ummælum þess síðarnefnda. „Það er langt síðan maður hefur séð eitthvað sem er gaman að horfa á. Mér finnst rosalega gaman að horfa á [Robert] Turner spila körfubolta, en það er ekkert gaman ef hann er bara að snúast í hringi og taka einhverjar ævintýrakörfur á meðn hinir eru bara að hlaupa fram og til baka.“ Stjarnan þurfti að sætta sig við eins stigs tap gegn Haukum síðastliðinn fimmtudag og liðið er nú í sjöunda sæti deildarinnar með átta stig í níu leikjum. „Svo er eitt eins og það að Hlynur Bæringsson, þegar hann er að fá boltann á þriggja stiga línunni og ætlar að fara að „dræva“ að körfunni og eitthvað svona, það er eitthvað sem þarf bara að stoppa. Sá tími er liðinn. Hann var að reyna það í þessum leik og það bara leit ekki vel út. Hann veit sjálfur hvar hann er bestur á vellinum. Hann er góður þegar menn gleyma honum úti í horni og hann getur tekið þrista, hann er frábær undir körfunni að berjast um fráköst og svona, en hann á ekki að taka boltann og fara af stað,“ sagði Hermann. Umræðu strákana um Stjörnuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Leiðinlegt að vera Stjörnuleikmaður í dag
Körfuboltakvöld Stjarnan Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira