Erlent

Indverjar og Kínverjar börðust á umdeildum landamærum

Samúel Karl Ólason skrifar
Indverskir og kínverskir hermenn börðust með bareflum, hnefum og grjóti á föstudaginn.
Indverskir og kínverskir hermenn börðust með bareflum, hnefum og grjóti á föstudaginn.

Yfirvöld í Indlandi hafa sakað Kínverja um að reyna að leggja undir sig indverskt landsvæði í austurhluta Indlands í síðustu viku. Til átaka kom á milli indverskra og kínverskra hermanna við landamæri ríkjanna sem lengi hefur verið deilt um.

Ráðamenn í Indlandi segja að kínverskir hermenn hafi farið inn fyrir landamæri Indlands í Arunachal Pradesh héraði og þar hafi þeir mætt indverskum hermönnum og í kjölfarið hafi komið til átaka á milli þeirra. Engu skoti var hleypt af en myndband sýnir indverska hermenn beita bareflum gegn Kínverjum.

Indverjar segja samkvæmt Times of India að þrjú til fjögur hundruð kínverskir hermenn hafi farið yfir landamærin og reynt að reka indverska hermenn á brott frá varðstöð þar. Indversku hermennirnir eru sagðir hafa stöðvað þá kínversku.

Eftir það munu Kínverjar hafa hörfað aftur. Myndband af átökunum hefur verið í dreifingu á netinu í dag.

AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni kínverska hersins að hermennirnir hafi verið í hefðbundinni eftirlitsferð innan landamæra Kína og indverskir hermenn hafi veist að þeim. Kínverjar gera tilkall til alls Arunachal Pradesh héraðs.

Enginn er sagður hafa slasast alvarlega í átökunum en engu skotvopni virðist hafa verið beitt.

Árið 2020 kom til mannskæðra átaka milli Indverja og Kínverja í Himalæjafjöllum, við norðanvert Indland en eins og áður segir hafa ríkin lengi deilt um landamæri þeirra. Hermennirnir eru sagðir hafa beitt bareflum og gaddakylfum en minnst tuttugu indverskir hermenn og minnst fjórir kínverskir dóu í átökunum.

Sjá einnig: Kínverjar viðurkenna mannfall í Himalæjafjölum í sumar

Til stríðs kom á milli Indlands og Kína árið 1962 og unnu Kínverjar það með afgerandi hætti. Nú búa bæði Indverjar og Kínverjar yfir kjarnorkuvopnum.

Eftir átökin 2020 sendu bæði Indverjar og Kínverjar tugi þúsunda hermanna á svæðið en þeir voru flestir kallaðir aftur til baka í fyrra.

Sjá einnig: Hersveitir hörfa frá umdeildu stöðuvatni




Fleiri fréttir

Sjá meira


×