Benidorm galopnaði Valsriðilinn með sigri gegn Kristjáni og félögum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. desember 2022 19:25 Kristján Örn skoraði eitt mark fyrir PAUC í kvöld. Twitter@pauchandball Benidorm vann óvæntan eins marks sigur er liðið tók á móti franska liðinu PAUC í B-riðli Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 33-32.
Gestirnir í PAUC byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu fyrstu fimm mörk leiksins. Liðið hélt fimm marka forystu sinni lengst af í fyrri hálfleik, en heimamenn náðu að jafna metin fyrir hálfleikshléið áður en PAUC skoraði seinasta mark hálfleiksins og staðan því 17-18 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik og gestirnir héldu forystunni til að byrja með. Benidorm komst þó yfir í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 25-24 og vann að lokum mikilvægan eins marks sigur, 33-32. Benidorm situr nú ú fimmta sæti riðilsins með fjögur stig eftir sex leiki, tveimur stigum minna en PAUC sem situr í öðru sæti riðilsins. Kristján Örn Kristjánsson kom lítið við sögur í liði PAUC í kvöld og skoraði aðeins eitt mark. Þá mátti svissneska liðið Kadetten Schaffhausen þola fimm marka tap er liðið tók á móti Göppingen frá Þýskalandi í A-riðli, 30-35. Staðan var jöfn í hálfleik, 17-17, en Þjóðverjarnir sigldu fram úr í síðari hálfleik og unnu að lokum mikilvægan sigur. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk fyrir Kadetten í kvöld. Liðið situr nú í þriðja sæti riðilsins með átta stig eftir sex leiki, líkt og Göppingen sem situr í öðru sæti. Að lokum þurfti Íslendingalið Alpla Hard að sætta sig við eins marks tap gegn Balatonfuredi í botnslag C-riðils, 27-26. Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði eitt mark fyrir Alpla Hard sem situr á botni riðilsins með eitt stig, tveimur stigum minna en Balatonfuredi.
Handbolti Evrópudeild karla í handbolta Valur Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira