Guðmundur: Það er bara fínt að það séu gerðar væntingar til okkar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. janúar 2023 13:30 Guðmundur er með báða fætur á jörðinni þó svo hann viti að liðið hans sé frábært. vísir/vilhelm Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er meira en klár í slaginn við Portúgal í kvöld en þetta er þriðja mótið í röð þar sem Ísland byrjar á að spila við Portúgal. „
Þetta er búinn að vera mikill undirbúningur og það tekur marga mánuði að undirbúa sig fyrir stórmót,“ segir þjálfarinn vinnusami. „Við erum búnir að kortleggja Portúgal eins vel og við getum. Liðið er töluvert breytt frá í fyrra. Andre Gomes er kominn inn en hann er hættuleg vinstri skytta. Costa-bræður eru öðruvísi. Hraðir og góðir.“ Landsliðsþjálfarinn segir að liðið sé í toppstandi og enginn að glíma við meiðsli. Klippa: Guðmundur um Portugalsleikinn „Við erum fullir tilhlökkunar. Það er búið að undirbúa lengi og það byggist upp eftirvænting eftir því sem nær dregur. Það er gott að byrja þetta og við iðum í skinninu.“ Það er ótrúlegur áhugi á landsliðinu og mikil trú á að liðið geti farið mjög langt að þessu sinni. Þessi umræða hefur ekki farið fram hjá Guðmundi. „Það er bara fínt að það séu gerðar væntingar. Ég hef reynt að benda á að við erum að fara í hörkuverkefni gegn góðum liðum. Það er verkefni okkar að taka eitt skref í einu. Við vitum að andstæðingurinn er góður en það erum við líka. Það er stutt á milli í þessu og við verðum að eiga góðan leik til að vinna.“
HM 2023 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn