Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. janúar 2023 10:36 Unnsteinn Örn Elvarsson, Arnar Kormákur Friðriksson og Almar Möller, verjendur sakborninga í málinu. Vísir Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni.
Héraðsdómari tók skýrt fram við upphaf aðalmeðferðar á fimmtudag að fjölmiðlar mættu ekki greina frá því sem fram kæmi í skýrslutökum fyrr en að lokinni aðalmeðferð. Héraðsdómur hefur samkvæmt elleftu grein laga um meðferð sakamála heimild til að banna að skýrt verði frá því sem gerist þar ef ætla megi að frásögn geti leitt til sakarspjalla eða valdið vandamönnum sakbornings, brotaþola eða öðrum sem ekki eru fyrir sökum hafðir þjáningum eða verulegum óþægindum. Þungir dómar líklegir Um er að ræða langstærsta kókaínmál sem komið hefur upp hér á landi. Fjórum sakborningum í málinu er gefið að sök að hafa flutt inn um hundrað kíló af kókaíni, sem falin voru í sjö trjádrumbum. Efnunum var komið fyrir í gámum í Brasilíu en sendingin fór fyrst til Hollands. Lögreglan á Íslandi komst á snoðir um smyglið vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi og lét tollverði í Rotterdam í Hollandi vita. Kókaíninu var skipt út fyrir gerviefni áður en gámurinn var sendur áfram til Íslands. Reikna má með þungum dómum verði mennirnir fundnir sekir. Þeir hafa allir játað aðkomu sína að málinu en afstaða þeirra til ákærunnar er þó ólík. Mennirnir fjórir eru allir ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og tilraun til stórfellds fíkniefnabrots. Þeir eru einnig allir ákærðir fyrir peningaþvætti. Sá liður hljóðar upp á samtals 63 milljónir. Mennirnir eru á aldrinum 27 til 68 ára. Þeir eru: Páll Jónsson, timburinnflytjandi á sjötugsaldri. Fyrirtæki hans, „Hús og Harðviður“ var samkvæmt ákæru notað til peningaþvættis. Jóhannes Páll Durr er 28 ára. Hann er best þekktur sem liðsstjóri íslenska landsliðsins í efótbolta. Daði Björnsson, þrítugur karlmaður. Hann er einnig ákærður fyrir kannabisræktun og vörslu maríjúana. Birgir Halldórsson, 27 ára karlmaður. Búið að farga efninu? Samkvæmt heimildum fréttastofu gera verjendur mannanna fjögurra athugasemd við það að mennirnir séu ákærðir fyrir innflutning á hundrað kílóum. Telja þeir að lögregla hafi aðeins opnað brot af pakkningunum sem fundust í Rotterdam. Restinni hafi verið fargað. Hér má sjá pakkningarnar sem gerðar voru upptækar í Rotterdam. Um hundrað kíló. Kókaín fannst í hluta pakkninganna en verjendur vilja meina að þær hafi ekki allar verið skoðaðar til að ganga úr skugga um að þar væri kókaín að finna. Fyrir vikið sé ekki hægt að færa sönnur á að um hafi verið að ræða hundrað kíló af kókaíni. Allar pakningarnar hafi ekki verið skoðaðar í þaula. Þegar kemur að því að ákveða refsingu mannanna skiptir lykilmáli hvert magnið var sem mennirnir eru sakaðir um að hafa flutt til landsins. Hámarksrefsing fyrir fíkniefnalagabrot er tólf ára fangelsi. Tveir hlutu þá refsingu í Saltdreifaramálinu svokallaða í haust. Skýrari mynd mun komast á þetta allt saman við aðalmeðferðina þegar skýrslutökur yfir lögreglumönnum og hollenskum tollverðum fara fram. Uppfært klukkan 11:40 Skýrslutökum yfir íslenskum lögreglumönnum sem komu að rannsókn málsins er lokið í dag. Aðalmeðferð í málinu verður fram haldið 9. og 10. febrúar þar sem fleiri gefa skýrslur, þeirra á meðal tollverðirnir í Hollandi og fleiri íslenskir lögreglumenn. Dómari í málinu ítrekaði við blaðamenn blátt bann við fréttaflutningi af því sem fram kom við aðalmeðferð málsins.
Stóra kókaínmálið 2022 Dómsmál Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Fleiri fréttir Minni fjölgun erlendra ríkisborgara en síðustu ár Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur Sjá meira