Misnotaði litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár Bjarki Sigurðsson skrifar 25. janúar 2023 11:54 Héraðsdómur Vestfjarða er staðsettur á Ísafirði. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misnota litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár, frá því að stúlkan var ellefu ára gömul þar til hún var átján ára. Maðurinn braut meðal annars á stúlkunni á meðan að sambúðarkona hans, systir stúlkunnar, lá í sama rúmi og þau.
Maðurinn var ákærður í fjórum liðum. Tveir þeirra fjölluðu um þrjár nauðganir sem áttu sér stað á árunum 2016 til 2019 og hinir tveir um kynferðislega áreitni sem átti sér stað árin 2014 til 2021. Maðurinn játaði að hafa framið nokkur brot sem fjallað er um í ákæru en neitaði að hafa framið önnur. Var ellefu ára þegar hann bað fyrst um nektarmynd Stúlkan og maðurinn kynntust árið 2009 þegar hún var sex ára gömul. Hvergi kemur fram í dómnum hversu gamall eða á hvaða aldri maðurinn er. Stúlkan segir samskipti þeirra á samskiptaforritinu Snapchat hafa hafist árið 2014 þegar hún var ellefu ára gömul. Fór maðurinn þá að biðja hana um nektarmyndir og múta henni með snyrtivörum. Hún sagðist hafa sent honum myndir af sér á nærbuxunum fyrir framan spegil en samskipti þeirra á forritinu héldu síðan áfram í nokkur ár. Árið 2016, þegar hún var þrettán ára, átti fyrsta nauðgunin sér stað. Þá dvaldi stúlkan í fellihýsi ásamt systur sinni og manninum. Eftir að stúlkan fór að sofa kom maðurinn til hennar og byrjaði að „putta“ hana og káfa á henni. Kvaðst hún hafa frosið og ekki vitað hvað hún ætti að gera. Maðurinn neitaði að nauðgunin hafi átt sér stað. Lá grafkyrr með sængina yfir höfðinu Jólin árið eftir voru þau bæði heima hjá foreldrum stúlkunnar. Þá kom maðurinn inn til hennar, káfaði á henni og puttaði hana. Þá lagði hann hönd hennar á lim sinn á meðan hún lá grafkyrr með sængina yfir höfði sínu og þorði ekki að segja neitt. Viðurkenndi maðurinn verknaðinn en sagði fyrir dómi að stúlkan hafi skömmu áður sent honum skilaboð um að hún vildi að hann snerti sig næst þegar hann kæmi. Samskipti þeirra á Snapchat héldu áfram en maðurinn viðurkenndi að hafa byrjað að bera kynferðislegar tilfinningar til hennar. Hann sendi henni myndir af sér nöktum og myndskeið af sér fróa sér. Þá bað hann stúlkuna um að senda sér nektarmyndir en í staðinn keypti hann handa henni gjafir. Í febrúar 2019 gisti stúlkan hjá systur sinni og manninum. Hún svaf þá í sama rúmi og þau en systirin svaf á milli þeirra. Þá var skilrúm á milli þótt um hafi verið að ræða sama rúmið. Stúlkan vaknaði við það að maðurinn var að káfa á henni og að putta hana. Í mars sama ár sagði stúlkan honum að hætta að senda sér skilaboð. Hann sagðist hafa gert það samstundis. Kíkti inn um glugga þegar hún var í sturtu Árið 2020 flutti stúlkan inn á heimili systur sinnar og mannsins á meðan hún gekk í framhaldsskóla. Hún segir áreitið þá hafa haldið áfram og að hann hafi oft komið inn í herbergi hennar á meðan hún var sofandi. Maðurinn viðurkenndi í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi átt erfitt með hætta samskiptum við stúlkuna, þá sérstaklega eftir að hún flutti inn til hans og systur hennar. Hann hafi meðal annars átt það til að kíkja inn um gluggann á baðherberginu þegar stúlkan fór í sturtu og kíkt inn í herbergið hennar þegar hún svaf. Fjögur ár í fangelsi Stúlkan bjó til skjal í byrjun árs 2022 þar sem hún lýsti þessari reynslu sinni. Hún sendi skjalið til annarrar systur sinnar og saman sögðu þær hinni systurinni, sambúðarkonu ákærða, frá þessu. Fyrir dómi sagði sambúðarkonan að henni hafi brugðið við tíðindin og liðið ömurlega vegna þeirra. Hún vissi lítið um brotin þar sem hún vildi ekki vita meira en hún þegar vissi. Maðurinn var sakfelldur fyrir alla fjóra ákæruliði og dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar. Þá þarf maðurinn að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur og samtals 3,2 milljónir í sakarkostnað. Dóminn má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira