Joel Embiid verður ekki meðal þeirra 10 leikmanna sem byrja stjörnuleik NBA deildarinnar í ár og virðist sem það hafi farið fyrir brjóstið á kauða. Hann átti hreint út sagt magnaðan leik þegar 76ers vann sjö stiga sigur á Nikola Jokić og félögum í Nuggets.
Það byrjaði hins vegar ekki vel fyrir Embiid og vini hans þar sem Denver var 15 stigum yfir í hálfleik, staðan þá 58-73. Í síðari hálfleik gekk hins vegar allt upp og Philadelphia vann leikinn 126-119.
Embiid var langstigahæstur á vellinum með 47 stig en hann tók einnig 18 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. James Harden kom þar á eftir með 17 stig, 13 stoðsendingar og 4 fráköst.
Hjá Denver skoraði Jokić 24 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 8 fráköst. Jamal Murray kom þar á eftir með 22 stig.
47 points
— NBA (@NBA) January 28, 2023
18 rebounds
5 assists
3 steals
2 blocks
Joel Embiid put on a MONSTER performance in the Sixers W. #NBARivalsWeek pic.twitter.com/TiXwFAFsZE
Nets og Knicks mættust svo í baráttunni um Stóra eplið. Kevin Durant var enn frá vegna meiðsla og þá tapaði liðið fyrir Detroit Pistons í leiknum á undan þessum. Knicks hefur hugsað sér gott til glóðarinnar.
Það voru hins vegar Nets sem byrjuðu betur og voru á endanum 13 stigum yfir í hálfleik. Lagði það grunninn að sigri liðsins en það fór svo að Nets vann með sjö stiga mun, 122-115.
NETS WIN pic.twitter.com/GdnDUn7Fr6
— Brooklyn Nets (@BrooklynNets) January 29, 2023
Kyrie Irving var að sjálfsögðu stigahæstur í Nets með 32 stig, þetta var sjötti leikurinn í röð sem hann skorar 30 stig eða meira. Kyrie gaf einnig 9 stoðsendingar og tók 6 fráköst. Þeir leikmenn Nets sem tóku þátt í leiknum komust allir á blað og allir skoruðu 5 stig eða meira.
Hjá Knicks var Jalen Brunson stigahæstur með 26 stig. Þar á eftir kom RJ Barrett með 24 stig á meðan Julius Randle skoraði 19 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
20+ points in the fourth... AGAIN. pic.twitter.com/RHwYiChiXi
— Brooklyn Nets (@BrooklynNets) January 29, 2023
Gömlu fjendurnir Boston Celtics og Los Angeles Lakers mættust í Boston. Heimaliðið hafði tapað þremur leikjum í röð á meðan Anthony Davis er mættur aftur í lið Lakers sem lætur sig dreyma um að komast allavega í umspilið um sæti í úrslitakeppninni. Á sama tíma er Boston að passa sig að missa ekki toppsætið í Austurdeildinni.
Leikurinn var mjög jafn frá upphafi til enda og taphrina Boston greinilega haft áhrif á sjálfstraust liðsins. Spennan var gríðarleg undir lok leiks en Lakers var þremur stigum yfir þegar tæpar tíu sekúndur voru eftir af leiknum. Lakers hafa átt í vandræðum með að loka leikjum allt tímabilið og það kom í bakið á þeim í nótt.
Al Horford átti ömurlegt þriggja stiga skot en Jaylen Brown náði frákastinu, setti boltann ofan í ásamt því að fá vítaskot til að jafna leikinn – sem hann og gerði.

LeBron James fékk tækifæri til að vinna leikinn í blálokin en Jayson Tatum sló í hendina á LeBron er hann keyrði að körfunni, skotið geigaði og ekkert dæmt. Staðan því 105-105 þegar venjulegur leiktími rann út og það þýðir aðeins eitt, framlenging.
Þar reyndust Boston sterkari og unnu á endanum fjögurra stiga sigur, 125-121. Er þetta annar leikur liðanna sem fer í framlengingu á leiktíðinni og í bæði skiptin hefur Boston unnið.
Brown var stigahæstur í liði Celtics með 37 stig ásamt því að taka 9 fráköst. Tatum skoraði 30 stig og tók 11 fráköst. Þá skaut Malcolm Brogdon upp kollinum með 26 stig.
37 PTS
— NBA (@NBA) January 29, 2023
9 REB
3 AST
Jaylen Brown showed out in the Celtics W. pic.twitter.com/XA8U7W8Rkd
Hjá Lakers var LeBron með 41 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Davis skoraði 16 stig og tók 10 fráköst.
LeBron tonight:
— NBA (@NBA) January 29, 2023
41 points
9 rebounds
8 assists
6 threes
117 points to the all-time scoring record. pic.twitter.com/YjfVdotVHr
Önnur úrslit
Orlando Magic 109 – 128 Chicago Bulls
Detroit Pistons 90 – 85 Houston Rockets
Atlanta Hawks 113 - 120 LA Clippers
New Orleans Pelicans 103 – 113 Washington Wizards
San Antonio Spurs 118 – 128 Phoenix Suns [Framlenging]
Minnesota Timberwolves 117 – 110 Sacramento Kings
Utah Jazz 108 – 100 Dallas Mavericks
Portland Trail Blazers 105 – 123 Toronto Raptors
A look at the updated NBA standings
— NBA (@NBA) January 29, 2023
https://t.co/6FlAliik3X pic.twitter.com/pOg3zPkkZd