Skoðun

Hvaða styrkir eru í boði á Íslandi og á Norðurlöndum?

Grace Achieng skrifar

Á Íslandi og á Norðurlöndum eru margvíslegir styrkir í boði fyrir þá sem vilja fjármagna hugmynd eða verkefni. En hvar á að byrja?

Þann 2.febrúar 2023, stóð Nefnd nýrra Íslendinga innan FKA fyrir vinnustofunni „Styrkir í boði fyrir fjármögnun á verkefni þínu eða hugmynd“. Frumælandi okkar var Emily Nikolova, en hún er reynslumikil í styrkjaskrifum og sem ráðgjafi fyrir sprotafyrirtæki og sjálfseignarstofnanir, auk þess sem hún býr yfir meira en 20 ára reynslu á sviði lögfræði og viðskipta.

Á vinnustofunni gaf Emily yfirsýn yfir þá styrki sem eru í boði fyrir fjármögnun á mismunandi stigum fyrirtækja eða sjálfseignarstofnana, hvernig sækja á um og skila inn umsókn, og veitti jafnframt ráð varðandi hvernig á að skrifa styrkjaumsókn sem ber árangur.

Á Íslandi eru fjölmargir styrkir sem hægt er að sækja um. Hvort sem um er að ræða tækninýjungar, kvenkyns frumkvöðla, nýjar matarhugmyndir, listir og menningu, ferðaþjónustu, aðlögun flóttafólks á Íslandi, markaðssetningu á núverandi vörum og þjónustu og svo framvegis. Lykilatriðið er það að í grunninn er þessir styrkir ætlaðir til þess að skapa og kynna “Made in Iceland” vörur og þjónustu. Einnig eru svæðisbundir styrkir í boði víða um land sem ætlaðir eru fyrir stuðning við vörur og þjónustuna í heimabyggð.

Einnig eru margvíslegir norrænir styrkir í boði eins og Nordic Environment Finance Corporation (NOPEF) styrkir fyrir græna tækni og lausnir, og NordForsk styrkir fyrir landbúnaðar-,fiskeldis-, lífhagkerfis-, barna-, kynja og heilsutengd verkefni auk margra annarra. Auk þess eru Nordplus styrkir fyrir verkefni á sviði menntunar og þjálfunar.

En hvernig velur þú réttan styrk fyrir rétt verkefni?

Lykilatriði sem hafa þarf í huga

Skilgreindu nákvæmlega markmið og tilgang verkefnisins

Skiptu verkefninu niður í mismunandi þrep, og verkefni eftir tímaröð

Skrifaðu niður núverandi stöðu þessara þrepa (verkefna) - lokið, í vinnslu, þarf fjármagn

Búðu til fjárhagsáætlun fyrir hvert verkefni og ákvarðaðu hversu stór hluti af fjárhagsáætlunni þarf að vera dekkaður af styrk.

Kannaðu hvaða styrkir eru í boði og ákvarðaðu hvaða styrkur hentar hverju verkefni

Búðu til áætlun yfir þá styrki sem þú vilt sækja um – hvað, hvenær, hvar

Hvernig á að skrifa styrkjaumsókn sem skilar árangri?

Það tekur tíma að sækja um styrki. Það gengur ekki upp að byrja að sækja um fimm dögum áður en skilafrestur rennur út. Það tekur nokkra mánuði að undirbúa umsókn um styrk. Hér að neðan eru nokkur atriði sem hafa þarf í huga áður en ferlið hefst:

Lestur yfir tilgang sjóðsins, og sérstaklega tilgang styrksins sem þú vilt sækja um

Kannaðu hvaða verkefni hafa hlotið fjármögnun á undanförnum árum

Hverjar eru reglur sjóðsins og hvernig metur sjóðurinn umsóknir

Ef eitthvað er óljóst, hafðu þá samband við tengilið sjóðsins

Ekki skrifa umsóknina beint á eyðublaðið, skrifaðu hana fyrst niður í Word eða Excel

Útdeildu hlutum af umsókninni á fólkið í teyminu þínu sem býr yfir þekkingu á tilteknu viðfangsefni

Skrifaðu raunsæja og vel skilgreinda verkefnaáætlun og fjárhagsáætlun

Gerðu almennilega markaðsgreiningu og aðgerðamiðaða ( go-to-market) markaðsstefnu

Gerðu grein fyrir virði vörunnar þinnar (hugmynd)

Teymið þitt

Hvað með tungumál?

Það er lykilatriði að lesa reglur sjóðsins varðandi hvort leyfilegt er að skrifa á ensku eða ekki. Fyrir íslenska styrki eru margir sem sýna að þeir geta skrifað annað hvort á íslensku eða ensku. Margir Íslendingar skrifa líka beint á ensku þar sem þeir geta notað það sem grunn þegar sótt er um í norrænum eða evrópskum sjóðum, eða fyrir áhættufjármögnun seinna meir. Það er frábær grunnur til að móta viðskiptastefnuna þína og fjárhagsspár til að nota í viðskiptatengslum, fjárfestatengslum og á mörgum fleiri sviðum.

Til að tryggja árangursríka styrkjaumsókn er mikilvægt að gefa sér tíma til að sýna fram á gildi vörunnar eða hugmyndarinnar og útbúa viðeigandi viðskiptaáætlun sem sýnir fram á hvernig þú munt framkvæma stefnuna þína.

Um FKA Nýir Íslendingar

Nýir Íslendingar er undirnefnd stærstu kvennatengslanets á Íslandi - FKA (Félag kvenna í atvinnurekstri) Markmið okkar er að styðja allar konur af erlendum uppruna sem búa á Íslandi og vilja þróast í sínu fagi og/eða þróa hugmyndir sínar eða fyrirtæki.

Höfundur er formaður FKA Nýir Íslendingar.




Skoðun

Sjá meira


×