Hin fyrstu kynni Birna Guðný Björnsdóttir skrifar 24. febrúar 2023 08:01 Þrír karlmenn standa saman við biðskýli. Tveir þeirra eru í yngri kantinum, rétt yfir tvítugt. Einn þeirra er kominn á fimmtugsaldur. Allir hafa þeir símann við hönd. Framhjá labbar fögur ung kona í klæðilegum klæðnaði sem sýnir kannski fullmikið fyrir suma. Allir karlmennirnir líta upp til að berja augum hina fallegu sýn, en innan nokkurra sekúnda eru þeir tvítugu komnir aftur í símann. En hinn eldri gjóar enn augum og leyfir sér að njóta. Dópamín þörfin varð yfirsterkari hjá ungu mönnunum en að nýta þessa stund til aukningar á testósterón flæði líkamans. Getur það verið að dópamínið sé að taka svona mikið fram úr í vinsældum? Hvernig ætli það sé með hin hamingjuhormónin? Nennum við ekki að teygja okkur eftir endorfínum í formi líkamsræktar og kynlífs, nennum við ekki að seyða að okkur serótónín í gegnum hlátur og félagsskap og óskum við ekki lengur eftir oxýtósín með knúsum, kossum og kannski smá kynlífi? Ég ætti kannski ekki að hafa of miklar áhyggjur af þessari nýju kynslóð af ungu fólki. Testósterónið hlýtur að yfirtaka stöðu mála á réttum augnablikum og gleðja hjarta okkar eldri kynslóða með litlum barnstásum. Og ef við förum eitthvað að örvænta þá getum við alltaf tekið upp kústana, lokað augunum og rekið strákana út á svalir, berrassaða, í 10 mínútur á hverjum degi í tvær vikur. Sólargeislar á pung eiga víst að gera það svo gott fyrir neðra svæðið að testósterónframleiðslan eykst um 200%. Þurfum við ekki bara að leyfa unga fólkinu að rekast á vegg? Kemur ekki alltaf sá tímapunktur að fólk fær bara nóg, sér að það er að fórna öðru góðu og fylgir eftir þeirri þörf að breyta til? Unga fólkið er líka eflaust eftir að taka hlutina á allt annað stig í uppátækjasemi, en er það ekki smá okkar sem eru eldri að ryðja brautina? Eru það ekki við sem höfum upplifað heim án tækja og tóla? Er það því ekki okkar að finna leiðir til aukinna samskipta í heimi gervigreindar og síma ánetjunar og hafa frumkvæði í að ganga á vit ævintýra í tilhugalífinu? Og hvað getum við gert, hvað stendur okkur til boða? Tinder og Smitten, allt með sama fólkinu. Tilbúið að njóta smá skyndibita án mikillar áreynslu og viðbúið því jafnóðum að hlaupa hraðspólandi í burtu. Kannski er málið bara að drífa sig á djammið? En æ ég er orðin svo gömul og djammið er bara flókið. Skemmtanalífið er ekki bara á þremur stöðum núna eins og í gamladaga svo það er erfitt að hitta á rétta markhópinn, ég vil fá tónlist sem er skemmtileg og ég get dansað við og hælarnir meiða strákar. Tærnar kremjast saman, fara ekki í sundur fyrr en að tveim dögum liðnum og ég enda með eymsli og blöðrur á fótunum. Og ég myndi leggja þetta allt á mig ef ég teldi einhverjar líkur á að hitta á réttu manneskjuna en ég er eiginlega fullviss að sú manneskja sitji frekar róleg heima hjá sér í hugleiðslu eða horfandi á heimildarþætti um skringilega tilvist pýramída sem líklegast eru aðeins eldri en mannkynssagan segir fyrir um. Og hér kemur eitt sem ég skil ekki. Leitin að rétta makanum er ekkert svo auðveld fyrir fólk í mínum aldursflokki. Af hverju stendur ekki til boða að komast í alls konar útivist, námskeið og skemmtanir sem ætluð eru sérstaklega einstaklingum í makaleit? Hefur það kannski farið framhjá mér? Mér finnst svo skrítið að ég hafi ekki heyrt neitt um slíkt, því tækifærin eru svo mörg. Ég held það bara, að einstaklingar yfir 35 ára sem eru í makaleit sé markaðshópur sem hefur verið smá hunsaður. Þeir eiga kannski ekki eins mikinn pening og þeir sem eru í sambúð, en þetta er samt fólk sem á kannski eitthvað til aflögu fyrir sjálfan sig, eftir tugi ára vinnu á vinnumarkaðinum. Þetta er þjóðfélagshópur sem væri kannski til í að gera eitthvað, en vantar kannski smá púst til komast aftur út á markaðinn. Það er eins og það vanti þessi tækifæri fyrir þennan hóp til að skapa töfra. Hægt væri samt að bjóða upp á alls konar námskeið til að ná til hópsins og skapa þar með vinnu fyrir fólk sem sjá tækifærin. Þar sem námskeiðin yrðu sérsniðin að einstaklingum í leit að sambandi þá er strax búið að stíga fyrstu skrefin í því að breyta feimni í hvatningu til náinna kynna. Hvað finnst ykkur? Er það ekki miklu eðlilegra að hitta og kynnast fólki þegar maður er að gera eitthvað skemmtilegt, frekar en að stara á andlit í símanum sem engan veginn er hægt að tengja saman við persónuleika og sjarma? Væri ekki bara gaman að geta farið eitthvað klukkan tíu að laugardagsmorgni, geta lært að dansa og kynnst fólki? Svona þegar maður er fullfrískur og með öll skilningarvitin opin. Kannski smá salsa eða tangó á námskeiði sem gæti verið nefnt ,,Eigum við að svífa saman á skýjum ástarinnar?“. Setja kannski fram eftir degi og kjafta. Leyfa sér að fá smá svigrúm til að kynnast. Svo væri ekki leiðinlegt að komast á ball með sama fólki seinna um kvöldið. Hægt væri að bjóða upp á kórnámskeið fyrir einhleypa. Það yrði annað hvort bein og breið leið í átt að kynnast hamingjunni, eða banvæn blanda af ósýnilegum rauðum flöggum. Því útgeislun mannsandans getur farið úr 1 upp í 10 á methraða með innilegri túlkun fagurra tóna og það getur verið svo erfitt að hrífast ekki með. Passa þyrfti bara að henda úr kórnum öllum þeim sem komnir eru í samband að hausti til og færa jafnframt nýtt kjöt inn í klúbbinn. Auglýsa mætti slíkan kyrjandi kór undir yfirskriftinni ,,Viltu syngja í faðmi fagurra fljóða og digurbarkalegra dáðadrengja“. Hægt væri að líka að bjóða upp á köfunarnámskeið undir nafninu ,,Langar þig til að kanna dulúð undirdjúpanna“. Það er hægt að bjóða upp á fallhlýfarstökk undir nafninu ,,Ertu til í að leyfa þér að falla“. Bogfimiklúbbar gætu verið með námskeið undir nafninu ,,Viltu hitta mig í hjartastað“. Golfklúbbar gætu verið með hópanámskeið fyrir einhleypa og æfingasvæði fyrir golf gætu verið með ný námskeið til að fylla upp í slottin allt árið í kring. Ég þori eiginlega ekki að skrifa niður nafnið sem mér datt í hug á heiti þeirra námskeiða, en jæja ég er ég, hvernig væri að nefna þau námskeið ,,Lærum saman að leika við kúlurnar“? Jæja, meira er það ekki að sinni. Ungu krakkarnir eru eflaust eftir að koma inn í þetta seinna og koma með fullt af skemmtilegum hugmyndum, enda eru þau búin að sjá ansi margt nýjungagjarnt í gegnum samfélagsmiðla, en hvernig væri að byrja bara á okkar nótum, með okkar hugmyndum, hjá þeim sem sjá tækifærin. Takk fyrir lesturinn, megið þið njóta dagsins og finna ykkar eigin ótal góðu leiðir í að pumpa upp flæði hamingjuhormóna út um allan líkamann. Höfundur er með MAcc í reikningshaldi og endurskoðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástin og lífið Tinder Tækni Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun