Andri Heimir, sem varð meðal annars tvisvar sinnum Íslandsmeistari með ÍBV, segir á Twitter að fjölmiðlar og „Valsmafía“ hafi haft áhrif á valið á landsliðshópnum sem kynntur var í gær, fyrir komandi leiki við Tékka.
„Mjög eðlilegt að eina breytingin á landsliðshóp sé að kalla Stiven inn og er Valsmafían farin að stjórna öllu hér í íslenskum handbolta. Hann er búinn að vera góður en við eigum nokkra menn sem eru að spila í mikið betri deildum. Við skulum ekki taka mark á því en til hamingju Valur,“ skrifar Andri Heimir meðal annars.
Mjög eðlilegt að eina breytingin á landsliðshóp er að kallaStiven inn oger Valsmafían farinn stjórna öllu hér í Íslenskum handbolta. Hann er búinn að vera góður en við eigum nokkra menn sem eru að spila í mikið betri deildum. Við skulum ekki taka mark á því en til hamingju Valur
— Andri Heimir Friðriksson (@andriheimir) February 23, 2023
Stiven var valinn í landsliðið í fyrsta sinn í gær fyrir komandi leiki við Tékka í undankeppni EM, 8. og 12. mars, eftir að hafa spilað afar vel með Val í vetur í Olís-deildinni og Evrópudeildinni, þar sem Valsmenn hafa tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.
Stiven tekur þar með sæti Hákonar Daða Styrmissonar, bróður Andra Heimis, sem annar tveggja rétthentra hornamanna í landsliðinu en hinn er Bjarki Már Elísson. Hákon og Bjarki fóru á HM í janúar en Hákon spilaði þó aðeins 51 mínútu á mótinu og skoraði eitt mark.
Gunnar Magnússon og Ágúst Jóhannsson, fyrrverandi aðstoðarmenn Guðmundar Guðmundssonar, stýra íslenska landsliðinu gegn Tékkum eftir óvænt brotthvarf Guðmundar í vikunni. Það kom því í þeirra hlut að velja landsliðið og var valið á Stiven það eina sem segja má að hafi ekki verið í samræmi við valið á HM-hópnum.
Hákon, Orri og Oddur á síðustu stórmótum
Hákon Daði leikur undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach í efstu deild Þýskalands, bestu landsdeild Evrópu, líkt og annar Eyjamaður, Elliði Snær Viðarsson. Hákon hefur skorað 53 mörk í átján deildarleikjum í vetur, þar af tólf af vítalínunni, og hefur nýtt 66% skota sinna.
Annar vinstri hornamaður sem ekki var valinn að þessu sinni er Orri Freyr Þorkelsson sem leikur með Elverum í norsku úrvalsdeildinni. Orri var í EM-hópnum fyrir rúmu ári síðan. Hann hefur skorað 32 mörk í 16 deildarleikjum fyrir Elverum sem er í næstefsta sæti deildarinnar, og auk þess 23 mörk í Meistaradeild Evrópu, nú síðast tvö mörk í 31-24 tapi gegn Álaborg á miðvikudagskvöld.
Þá er vinstri hornamaðurinn Oddur Gretarsson, sem var í HM-hópnum í Egyptalandi fyrir tveimur árum, einn markahæsti leikmaður þýsku B-deildarinnar með 131 mark í 22 leikjum í vetur fyrir Balingen.