City ekki í vandræðum með B-deildarlið Bristol | Leicester óvænt úr leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. febrúar 2023 22:01 Manchester City er á leið í átta liða úrslit FA-bikarsins. Shaun Botterill/Getty Images Englandsmeistarara Manchester City eru komnir í átta liða úrslit FA-bikarsins í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 útisigur gegn B-deildarliðið Bristol City í kvöld. Nokkrum mínútum áður féll úrvalsdeildarlið Leicester úr leik eftir óvænt 2-1 tap gegn B-deildarliðið Blackburn Rovers.
Phil Foden skoarði eina mark fyrri hálfleiksins þegar hann kom gestunum í City yfir strax á sjöundu mínútu og staðan var því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Foden var svo aftur á ferðinni rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok þegar hann tvöfaldaði forystu gestanna, áður en Kevin De Bruyne gulltryggði 3-0 sigur liðsins, og sæti í átta liða úrslitum um leið. Þá mátti Leicester þola 2-1 tap er liðið tók á móti B-deildarliði Blackburn Rovers. Tyrhys Dolan og Sammie Szmodics sáu um markaskorun Blacburn sitt hvoru megin við hálfleikshléið áður en Kelechi Iheanacho minnkaði muninn fyrir Leicester á 67. mínútu. Blackburn er því á leið í átta liða úrslit FA-bikarsins á kostnað Leicester, en ásamt Blackburn og Manchester City tryggðu Fulham og Brighton sér einnig sæti í átta liða úrslitum. Brighton vann 1-0 sigur gegn B-deildarliði Stoke og Fulham hafði betur í úrvalsdeildarslag gegn Leeds, 2-0. Seinni fjórir leikir 16-liða úrslitanna fara svo fram annað kvöld og að þeim loknum verður dregið í átta liða úrslitin.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira