Eiga rétt á bótum eftir að sprengjuhótun tafði för Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. mars 2023 13:18 Flugvél Wizz Air á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Frikki Fjórir farþegar ungverska flugfélagsins Wizz Air eiga rétt á bótum frá félaginu vegna tafa sem urðu á för þeirra sem rekja má til sprengjuhótunar á flugvellinum í Kraká í Póllandi.
Þetta er niðurstaða Samgöngustofu í máli farþeganna fjögurra. Áttu þeir far með Wizz Air frá Keflavík til Kraká þann 24. júlí á síðasta ári. Því flugi var hins vegar aflýst þar sem fyrra flugi flugvélarinnar sem átti að koma til Ísland var aflýst. Var það vegna sprengjuhótunar sem beindist að annarri flugvél sem var á leið til flugvallarins í Kraká frá Ísrael. Varð það til þess að flugvellinum í Kraká var lokað og því komst umrædd flugvél komst ekki til Íslands. Því var fluginu aflýst. Sprengjuhótunin falli undir óviðráðanlegar aðstæður Umræddir farþegar fengu flug á áfangastað þremur dögum síðar. Þetta sættu þeir sig ekki við og freistuðu þeir því að sækja staðlaðar bætur til flugfélagsins vegna tafanna, 400 evrur eða um 60 þúsund krónur á mann. Flugfélagið vísaði hins vegar til að ástæða aflýsingarinnar, það er sprengjuhótunin, væri vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Því ættu farþegarnir ekki rétt á bótum. Kvörtuðu farþegarnir til Samgöngustofu vegna málsins og fóru fram á bætur. Í úrskurði Samgöngustofu kemur fram að tekið sé undir að upprunaleg ástæða aflýsingar flugsins hafi verið vegna óviðráðanlega aðstæðna. Eðlileg flugumferð eftir að flugvöllurinn var opnaður á ný Hins vegar leit Samgöngustofa til þess að farþegunum hafi ekki verið úthlutað annað flug fyrr en þremur dögum síðar. Í ljósi þess að flugumferð hafi verið með eðlilegum hætti dagana eftir sprengjuhótunina hafi flugfélagið ekki sýnt fram á að allar nauðsynlegar ráðstafanir hafi verið gerðar til að koma í veg fyrir þau óþægindi sem farþegarnir urðu fyrir. Hver og einn ætti því rétt á bótum sem miðast við fyrrgreinda upphæð.
Fréttir af flugi Samgöngur Pólland Neytendur Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent