Kom inn af bekknum í aðeins annað sinn og gæti farið undir hnífinn í sumar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. mars 2023 19:31 LeBron James í aðeins sínum öðrum leik sem varamaður í NBA-deildinni Kevork Djansezian/Getty Images LeBron James kom inn af bekknum í tapi Los Angeles Lakers gegn Chicago Bulls í NBA-deildinni í körfubolta. Þetta var aðeins í annað sinn á ferli sem spannar rúmlega tvo áratugi sem LeBron kemur inn af bekknum.
LeBron James er orðinn 38 ára gamall og hefur verið í NBA-deildinni frá árinu 2003. Síðan þá hefur hann spilað með Cleveland Cavaliers, Miami Heat og Los Angeles Lakers, þar sem hann er enn. Hann hefur fjórum sinnum orðið NBA-meistari og nú tvívegis komið inn af bekknum á ferlinum sínum. Annar leikurinn kom nú gegn Chicago en sá fyrsti var árið 2007 þegar LeBron var leikmaður Cleveland. LeBron will come off the bench today for the first time since Dec. 11, 2007 It's only his second time coming off the bench in 1,680 career games pic.twitter.com/kODlKOdoTc— SportsCenter (@SportsCenter) March 26, 2023 LeBron hefur verið að glíma við erfið meiðsli nær allt tímabilið en hefur þó spilað 48 leiki á tímabilinu. Fyrir leikinn gegn Chicago hafði LeBron ekki spilað í sléttan mánuð vegna meiðsla. Missti hann af 13 leikjum á þeim tíma. Hann virðist ætla að spila í gegnum sársaukann til að hjálpa Lakers inn í úrslitakeppnina og fara sem lengst þar. Eftir leik sagðist LeBron ekki vita hvort hann væri á leið undir hnífinn þegar tímabilinu lýkur. Hann sagði þó að ef hann færi í aðgerð þá myndu fjölmiðlar ekki fá að vita af því.
Körfubolti NBA Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Íslenski boltinn Vann Ólympíubrons en ætlar að keppa á Steraleikunum og slá heimsmetið Sport Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Íslenski boltinn Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Enski boltinn Fleiri fréttir Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Sjá meira