Grant sagði fyrir dómi að árið 2011 hafi verið brotist inn á heimili hans í Lundúnum en engu hafi verið stolið. Daginn eftir hafi frétt birst hjá Sun þar sem húskostum var lýst nákvæmlega og greint frá því að ummerki væru um erjur á heimilinu.
Grant segir að á þessum tíma hafi hann ekki haft neinn grun um hver braust in.
„Ég hafði engar sannanir fyrir því að fréttamiðlar bæru ábyrgð á innbrotinu, hvað þá að The Sun hafi verið ábyrgt,“ sagði Grant.
Hann sagðist hafa tekið ákvörðun um að stefna blaðinu eftir að hann fékk í hendur gögn sem sýndu fram á að Sun hafi beint spjótum sínum að honum og vandamönnum hans. Grant sagðist þá einnig vita af því að á fyrsta áratugi aldarinnar hafi Sun ráðið einkaspæjara til að brjótast inn í tvö húsnæði í eigu kvikmyndafyrirtækis hans og fyrrverandi kærustu hans Liz Hurley.
Leikarinn segir Rebekah Brooks, þáverandi ritstjóra blaðsins, hafa haft fulla vitneskju um innbrotin. Sun hefur harðneitað öllum ásökunum leikarans. Þá hefur móðurfyrirtæki Sun, News Group Newspapers, í eigu ástralska auðjöfursins Rupert Murdoch, tekið fyrir að nokkuð misjafnt hafi gengið á hjá blaðinu.
Harry Bretaprins hefur staðið í svipuðum málaferlum gegn The Sun. Blaðið hefur reynt að koma í veg fyrir að málaferlar fari lengra með því að vísa til þess að bæði Grant og Harry hafi tekið sér of langan tíma til að skila inn gögnum í málunum. Báðir hafa þeir þá borið fyrir sig að ástæða þess sé að Sun hafi ekki viljað afhenda gögn í málinu.