Yfirskrift dagskránnar í ár er Hvað nú og rauði þráðurinn í sýningunum og innihaldi verkefna er sjálfbærni og endurnýting. Álfrún Pálsdóttir, kynningarstjóri hátíðarinnar segir sýningarnar endurspegla tíðaraldann á sviði hönnunar og arkitektúrs.
„Hvað erum við að hanna inn i betri heim, til að auðga og búa til verðmæti? Ég er spenntust að sjá það og það sem verkefnin endurspegla tíðarandan, samfélagið og hvað það er sem við erum að spá í akkurat núna,“ segir Álfrún og bætir við að hátíðin sé einstök á alþjóðlegan mælikvarða.
„Af því að við erum að sameina allt frá arkitektúr yfir í fatahönnun og allt þar á milli. Grafísk hönnun, vöruhönnun, stafræn hönnun, það er eitthvað fyrir öll á dagskrá hönnunarmars.“
Til skoðunar að breyta nafninu
Þrátt heitið Hönnunarmars hefur hátíðin ekki verið haldin í mars síðustu þrjú ár. Upphaflega var tímasetningunni breytt vegna Covid faraldursins en það reyndist svo vel að ákveðið var að halda sig við dagsetningu nær sumri og hækkandi sól.
„Það er aðeins meiri áhætta að vera í mars. Það er aðal ástæðan. En hvort mars verði í maí 2024 er engin leið að vita en við leyfum okkur allavega að gera smá tilraunir með þetta,“ segir Álfrún sem segir að það komi til greina að breyta nafninu.
„Það er til umræðu, það er stóra spurningin, við sjáum til en annars tölum við bara um að við séum að marsera á milli sýninga.“
Sem fyrr segir verður hátíðin sett í dag. Um hundrað sýningar verða í boði víðsvegar um höfuðborgarsvæðið en dagskrána má sjá hér.
„Það er alveg glæsileg dagskrá framundan og ótrúlega gaman að sjá þetta allt saman verða að veruleika sem maður er búinn að skipuleggja í marga mánuði“, segir Álfrún Pálsdóttir, kynningarstjóri Hönnunarmars.