Skamma Olís vegna HM-afláttar sem gilti bara á sumum ÓB-stöðvum Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2023 07:37 Olís, sem rekur ÓB-stöðvarnar, auglýsti afslátt í tengslum við íslenska landsliðið á HM í handbolta sem fram fór í Svíþjóð fyrr á árinu. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur slegið á fingur Olís vegna auglýsinga um afslátt á eldsneyti á völdum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Félagið auglýsti þar afslátt af eldsneyti, sem tengdist úrslitum íslenska landsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Svíþjóð í janúar síðastliðinn, án þess að tekið var fram að afslátturinn gilti ekki á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum ÓB. Hefur félaginu verið bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti.
Félagið auglýsti jafnframt afslátt á vefsíðu félagsins þar sem tilkynnt var með stjörnumerktum texta með smáu letri að afslátturinn gilti ekki á þeim sjálfsafgreiðslustöðvum þar sem í gildi væri lægsta verð ÓB. Í ákvörðun Neytendstofu segir að í svörum Olís hafi komið fram að ef smellt hafi verið á auglýsingarnar hafi birst borði þar sem komið hafi fram að viðkomandi afsláttur gilti ekki á tilteknum stöðvum ÓB. Sömuleiðis hafi skilaboð verið send á viðskiptamenn félagsins þar sem þetta kom fram og því telji félagið að auglýsingarnar hafi ekki verið til þess fallnar að blekkja neytendur. Neytendastofa komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að með því að taka ekki fram í öllum auglýsingum að afslátturinn væri ekki í boði á ákveðnum sölustöðum hafi Olís viðhaft villandi viðskiptahætti. Auk þess hafi Neytendastofa komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingar um takmarkanir á afsláttum hafi ekki verið komið á framfæri með nægjanlega skýrum og greinargóðum hætti. Því hafi stofnunin bannað Olís að viðhafa umrædda viðskiptahætti.
Neytendur Auglýsinga- og markaðsmál HM 2023 í handbolta Bensín og olía Mest lesið Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Fleiri fréttir Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Sorpa í Hafnarfirði opnar framvegis klukkan níu um helgar Landsbankinn og Arion lækka vexti „Sporttöppum“ aftur komið fyrir Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Sjá meira