Toppliðið fékk að kenna á banvænum skotfæti nítján ára Eyjameyju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2023 14:30 Þóra Björg Stefánsdóttir skoraði tvö frábær mörk í sigri á Þrótti. S2 Sport Eyjakonur bitu frá sér í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna þegar þær unnu 3-0 sigur á toppliði Þróttar.
Þróttur sat í toppsætinu fyrir umferðina en liðið úr Laugardalnum átti fá svör á Hásteinsvellinum. Hin nítján ára gamla Þóra Björg Stefánsdóttir skoraði tvö glæsileg mörk í leiknum. Það fyrra skoraði hún með skoti beint úr hornspyrnu strax á 6. mínútu en það síðara skoraði hún með geggjuðu skoti beint úr aukaspyrnu á 37. mínútu. Þóra Björg er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og nýtti sér vel vindinn í þessum tveimur frábærum mörkum. Olga Sevcova kom ÍBV í 2-0 í millitíðinni eftir að hafa fengið stoðsendingu frá markverðinum Guðnýju Geirsdóttur. Hér fyrir neðan má sjá þessi flottu mörk ÍBV liðsins. Klippa: Mörkin úr 3-0 sigri ÍBV á Þrótti Sigur ÍBV hjálpaði Þór/KA liðinu að komast á toppinn en hér fyrir neðan má sjá mörk norðankvenna í flottum 2-0 sigri á Breiðabliki. Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði fyrra markið með frábæru skoti úr vítateignum eftir að hafa fengið stoðsendingu frá Söndru Maríu Jessen. Sandra María innsiglaði sjálf sigurinn í uppbótatíma eftir frábæran undirbúning hinnar átján ára gömlu Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur. Hér fyrir neðan má sjá þessi mörk Þór/KA liðsins. Klippa: Mörkin úr 2-0 sigri Þór/KA á Breiðabliki
Besta deild kvenna ÍBV Þór Akureyri KA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV - Keflavík | Tekst botnliðinu að rétta úr kútnum? Þór - Stjarnan | Geta komist upp fyrir Garðbæinga KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Sjá meira