Hundrað dögum eftir að tilkynnt var um brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar hélt HSÍ blaðamannafund í gær til að kynna Snorra til leiks.
Í millitíðinni spilaði íslenska landsliðið fjóra síðustu leiki sína í undankeppni EM og náði að tryggja sér efsta sætið í sínum riðli, og þar með sæti í efsta styrkleikaflokki fyrir EM-dráttinn. Ísland dróst svo í riðil með Serbíu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi, og verður það fyrsta stóra verkefni Snorra að koma Íslandi upp úr þessum riðli, á EM í Þýskalandi í janúar.
Vildu losa sig strax við tímapressu
En af hverju tók þjálfaraleitin hundrað daga?
„Eins og ég hef komið inn á þá ákváðum við strax að losa okkur við alla tímapressu, með því að fá aðstoðarmennina [Guðmundar Guðmundssonar] til að klára þau verkefni sem voru eftir. Til þess í rauninni að geta sett niður hvernig við sáum starfið fyrir okkur, hvernig karakter við vildum fá í það, og hvaða möguleikar væru í boði.
Í svona ferli, og þegar maður er í sjálfu sér ekki beint að flýta sér, þá kemur alltaf eitthvað upp sem þarf að skoða og tekur tíma. Við vorum bara ekkert að flýta okkur,“ sagði Guðmundur í viðtali við Stefán Árna Pálsson sem sjá má hér að neðan.
Formlegar viðræður við Snorra virtust hafa tekið ansi langan tíma, en var erfitt að ná samkomulagi?
„Nei, nei. Það er bara alltaf þannig í viðræðum að menn vilja koma sínu að. Við tókum svo þá umræðu og skildum sáttir.“
Arnór mjög spenntur
Arnór Atlason var ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari. Hann tekur einnig við sem aðalþjálfari hjá danska liðinu Team Tvis Holstebro í sumar, en fram að því er hann aðstoðarþjálfari Aalborg og þjálfari U21-landsliðs Danmerkur.
„Hann sýndi þessu strax áhuga. Þegar við vorum búnir að ná samkomulagi við Snorra þá fórum við að horfa í teymið sem slíkt, og það var okkar ákvörðun að bíða þar til við gætum kynnt teymið. Við vildum gera það í einu lagi. Arnór var mjög spenntur en hann er að taka við nýju liði í Danmörku og það tók svolítinn tíma að fínpússa að hann gæti gert þetta, en það stóð alls ekki á honum. Hann var mjög spenntur,“ sagði Guðmundur.

Geti keppt um verðlaun inn á milli
En hverjar verða kröfurnar á nýja þjálfarateymið?
„Við teljum okkur vera á miðri vegferð. Við erum ekki að fara í að byggja upp eitthvað lið. Við teljum að við séum með menn á góðum aldri í liðinu og höfum rætt það saman að okkar markmið sé svona að vera í topp átta. Til að vinna til verðlauna þarf margt að ganga upp. Við þurfum að vera heppnir með lið í riðli, allir þurfa að vera heilir og svona. Það er ekki raunhæft að keppa um verðlaun á hverju móti en við eigum að geta gert það inn á milli.“