Urðu af milljónum vegna hákarlabits Máni Snær Þorláksson skrifar 19. júní 2023 22:52 Fiskurinn sem um ræðir má sjá hér á myndinni. Hann dugði ekki til þar sem hákarlabit fannst á honum við nánari skoðun. Skjáskot/YouTube Veiðimenn bátarins Sensation voru sannfærðir um að þeir væru búnir að vinna veiðikeppnina Big Rock Blue Marlin sem haldin er í bænum Morehead City í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Fiskurinn sem þeir veiddu vó rúmlega 280 kíló og reyndist hann vera sá stærsti þetta árið. Veiðimennirnir á Sensation stóðu þó ekki uppi sem sigurvegarar keppninnar þetta árið.
Verðlaunaféð fyrir stærsta fiskinn var 2,77 milljónir bandaríkjadollara, um 378 milljónir í íslenskum krónum. Ofan á það var veitt 739.500 dollarar fyrir að veiða fyrsta fiskinn sem vegur meira en fimm hundruð pund, eða yfir 227 kíló. Alls héldu veiðimennirnir á Sensation því að þeir hefðu unnið rúmlega þrjár og hálfa milljónir dollara, sem samsvarar um 478 milljónum í íslenskum krónum. Þeir fengu þó ekki verðlaunaféð, þrátt fyrir að fiskurinn hafi verið sá stærsti. Ástæðan fyrir því er sú að við nánari skoðun kom bitsár í ljós á fiskinum sem þeir veiddu. Svo virtist vera sem fiskurinn hafi verið bitinn af hákarli. Reglur keppninnar varðandi þetta eru skýrar, þeir fiskar sem eru særðir þegar þeir eru veiddir teljast ekki með. Þessi regla er sett til að koma í veg fyrir að veiðimenn særi fiskana áður en þeir eru veiddir. Þá sé einnig auðveldara að veiða fiska sem hafa orðið fyrir barðinu á hákörlum eða öðrum sjávarverum. Greg McCoy, kafteinn á Sensation, segir í samtali við Washington Post að liðið sitt hafi ekki svindlað. Þeir hafi haldið að fiskurinn væri löglegur þegar þeir komu með hann í land. Hann segir að þeir hafi náð fisknum í land á síðasta klukkutímanum á síðasta degi keppninnar, það hafi tekið sex klukkustundir. Því sé erfitt að kyngja því að þeir hafi ekki unnið keppnina með fisknum.
Bandaríkin Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira