Bjargað þar sem hún hékk á varadekki í Markarfljóti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. júní 2023 09:56 Konan var hífð upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm Björgunarsveitir og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar komu konu til bjargar í Markarfljóti í morgun eftir að bíll hennar lenti í fljótinu.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að konan hafi verið á leið heim úr vinnu og virðist svo vera sem hún hafi sofnað undir stýri. Jepplingur konunnar lenti upp á vegriði við brú þar sem það er sveigt ofan í jörð og vegriðið því eins og stökkpallur að sögn Jóns. Jepplingur konunnar ferðaðist hundrað metra niður ána en konan náði að koma sér út úr honum og hékk á varadekki hans aftan á bílnum þegar vegfarandi varð hennar var og gerði björgunarsveitum viðvart. Jón segir ekki ljóst hve lengi konan var í fljótinu áður en hennar varð vart. Björgunarsveitir fóru á tuðru út á fljótið og komst björgunarmaður til hennar á bílnum, þar sem hún var færð upp á þakið þar sem fór betur um hana, að sögn Jóns. Konan er ekki alvarlega slösuð en var köld og smeyk. Hún var hífð upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og flutt á Landspítalann. Vegriðið þar sem konan fór út af. Hjólför eru eftir bíla björgunarsveita.Landsbjörg
Björgunarsveitir Umferð Rangárþing eystra Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Fleiri fréttir Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Sjá meira