Neytendur

Bjór á tilboði á tvö þúsund krónur

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Allt verður verðbólgunni að bráð og bjórinn er þar engin undantekning.
Allt verður verðbólgunni að bráð og bjórinn er þar engin undantekning. vísir/grafík

Íbúum Hlíðahverfis brá í brún við að sjá nýjan verðlista hverfisbarsins. Nú kostar bjórinn þar hvorki meira né minna en tvö þúsund og fimmhundruð krónur. Tvö þúsund á tilboði frá klukkan fimm til níu, þá er sælustund (e. happy hour).

Þessi verðlagning Bus hostel í Skógarhlíð í Reykjavík leggst illa í neytendur. Á Facebook-hópi Hlíðahverfis er talað um að búið sé að fæla íbúa hverfisins algerlega frá staðnum. Pöbbinn er búinn að stimpla sig út sem hverfispöbbinn. „Næs áður en það urðu eigendaskipti,“ segir ein.

Verðlisti Bus hostel. 

Bjórarnir eru kallaðir „local craft beers“, sumsé bjórar bruggaðir beint frá býli. Þar á meðal má finna bjór Carlsberg, stærsta bjórframleiðenda Danmerkur.

Sem betur fer er samkeppni

Í samtali við fréttastofu minnir Breki Karlsson á að öflugasta tæki neytenda sé veskið. 

„Það er auðvitað frjáls álagning á Íslandi. Fólk gæti þess vegna reynt að selja bjór á tíu þúsund kall en sem betur fer er mikil samkeppni á þessum markaði. Ég nefni það oft að kaffið á Champs-Élysées í París kostar tíu evrur en ef þú gengur tvær hliðargötur færðu bollann á tvær evrur,“ segir Breki

Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna.Vísir/Ívar

„Þótt þetta sé ofurhátt og okur þá er ekkert ólöglegt við það. Það hlýtur að vera eitthvað sérstakt við þennan bjór fyrst hann er svona svakalega dýr. En fólk getur sem betur fer ákveðið að versla ekki við fyrirtæki sem okra svona.“

Áfengisgjald var hækkað í janúar á þessu ári. Hækkuðu gjöldin þá um 7,7 prósent.

„Svona gjöld auka á verðbólgu sem er auðvitað eitur í beinum okkar. Ef það á að auka tekjur ríkissjóðs eru aðrar leiðir til þess en að hækka álögur, líkt og var gert í fjárlagafrumvarpinu,“ segir Breki að lokum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×