„Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Lovísa Arnardóttir skrifar 7. nóvember 2025 08:55 Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri SVÞ, segir jólaverslun hafna og verslunarmenn ekki endilega merkja samdrátt í neyslu. Vísir/Einar Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir verslunarmenn ekki finna fyrir miklum samdrætti. Það hafi orðið einhver breyting á neyslu en almennt sé verslun góð. Verslunarmenn séu spenntir fyrir afsláttardögunum fram undan og jólaverslun sem sé hafin.
Benedikt segist hafa rætt við verslunarmenn í vikunni og það sé ekki þeirra tilfinning að neytendur séu mikið búnir að breyta hegðun sinni utan þess sem gerist þegar það er verðbólga. „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt enn sem komið er,“ segir Benedikt sem var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segir geta verið mun eftir því hvernig verslun er um að ræða og nefnir í því samhengi viðtal við Finn Oddsson, forstjóra Haga, sem sagði Haga greina að neytendur væru að geyma til dæmis matarinnkaupin þar til eftir mánaðamótin. Hagar reka til dæmis Bónus, Hagkaup, Olís, Banana og Zöru. Hann sagði breytta neytendahegðun aðallega tvenns konar. „Það skiptist í tvennt, það er tilfærsla yfir á ódýrari hluta vara í sama vöruflokki. Það er þróun sem er búin að eiga sér stað síðustu tvö ár,“ segir Benedikt og að svo sé það þessi tilfærsla að geyma innkaupin þar til eftir mánaðamót. „Það er afar mismunandi eftir verslunum,“ segir Benedikt sem ræddi við verslunarmenn í vikunni og sagði suma ekki sjá nein slík merki. Verslunarmenn með væntingar í hófi Benedikt segir að þegar horfur eru ekki góðar stilla menn væntingum í hóf og þannig sé verslunarfólk ekki endilega með væntingar um mikinn gróða, heldur vilji það bara sjá svipaða niðurstöðu og árið áður, verðlagsleiðrétta. „Ef það kemur svo aukning er það umfram væntingar,“ segir hann. Hann segir jólaverslun komna í gang. Hún hafi byrjað um síðustu mánaðamót og verslunarmenn segja hana fara betur af stað en þeir bjuggust við. „Fyrstu merki eru allavega ekki að neytendur séu að halda að sér höndum,“ segir hann og að á sama tíma sé mikil spenna í kringum afsláttardaga. Verslunarfólk sjái hreyfingar inni á netverslunum. Benedikt segir verslunarmenn fylgjast með því sem gerist úti í heimi og í íslensku efnahagslífi. Það séu blikur á lofti en fólk viti ekki hvernig það fer eða hversu lengi það geti varið. „Íslenski neytandinn er dálítið öðruvísi en neytandinn á hinum Norðurlöndunum. Slæmar fréttir koma strax fram í kauphegðun,“ segir hann og að hann hafi hitt kollega í Danmörku um daginn sem sagði honum að kjötneysla hefði hrapað undanfarin ár. Það væri dýr matvara og neytendur þar taki því mjög bókstaflega. Hann segir einkaneyslu Íslendinga ekki endilega sveiflast eins mikið og þar eftir fréttum um vexti og verðbólgu. „Ég veit ekki nákvæmlega hver skýringin á því er en mann grunar að það sé vegna þess að kaupmátturinn hér hefur verið stórgóður.“ Kaffi hækkað um 20 prósent Hvað varðar vöruverð segir hann ýmsar vörur hafa lækkað síðustu misseri og nefnir í því samhengi ýmis ber, ávexti og grænmeti. Það sem hafi ekki lækkað er til dæmis kaffi, sem hafi hækkað um 20 prósent á þessu ári. Hann segir kostnað við rekstur verslana hafa aukist og á þá við leigu, rafmagn og laun og þannig að einhverjum 100 krónum sé minna eftir af honum í dag en fyrir ári en afkoman hafi batnað lítillega á sama tíma. „Miðað við það að afkoman hafi ekki stóraukist þá bendir það til þess að gengisstyrking, og lækkanir á innkaupsverðum, hafi skilað sér nokkuð duglega út,“ segir Benedikt og að takturinn sé dálítið skrítinn samt sem áður. Það hafi byrjað á hækkun á innfluttum vörum, aðföngum og vörum, í kringum Úkraínustríðið, svo hafi þessi innflutta verðbólga dvínað en þá hafi innlend verðbólga tekið við. Núna sé trendið að innlendar framleiðsluvörur séu að taka mestar hækkanir, fyrir utan kaffi og kakóvörur sem einnig hafi hækkað. Verslunarmenn brattir og fólk í betra skapi Benedikt segir alla stefna að því að komast út úr þessum hring og að verslunarmenn séu nokkuð brattir eins og er. „Þeir eru nokkuð brattir. Þetta er líka skemmtilegur tími núna fram undan,“ segir hann og að það sé mikil stemning í verslunum á þessum tíma, mikið að gera og í mörgum verslunum sé þetta mikilvægasti tíminn. Á sama tíma sé spennandi að fylgjast með vexti netverslana og áhugavert að sjá hvernig verslunin dreifist á lengri tíma í kringum afsláttardagana. Sá fyrsti er á þriðjudag í næstu viku, dagur einhleypra, og svo tekur við svartur föstudagur og stafrænn mánudagur í kringum síðustu helgi mánaðarins. „Þetta er ekki lengur þessi klikkun sem var 23. desember, dreifist miklu meira og fólk er í betra skapi.“
Verslun Fjármál heimilisins Efnahagsmál Seðlabankinn Verðlag Bítið Matvöruverslun Neytendur Tengdar fréttir „Ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina vera að taka til eftir óstjórn í ríkisfjármálum á síðustu árum en sérstök umræða um efnahagsmál er í gangi á Alþingi að beiðni Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokks. Guðrún sagði stöðu hagkerfisins erfiða og að atvinnulífið ætti undir högg að sækja. 6. nóvember 2025 12:19 Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segja mikilvægt að bregðast við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði. Sólveig Anna kallar eftir leigubremsu og Sigurður segir ríkisstjórnina verða að kynna sín úrræði fljótlega vegna dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu. 6. nóvember 2025 11:40 „Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir meirihlutann í borgarstjórn sýna algjört ábyrgðarleysi í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár og til 2030. Hann á ekki von á því að áætlanir um milljarðaafgang standist, sér í lagi vegna stöðunnar sem uppi er í efnahagsmálum. 4. nóvember 2025 15:02 Mest lesið Verðbólga hjaðnar hressilega Viðskipti innlent Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Viðskipti innlent Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Viðskipti innlent Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka hættir Viðskipti innlent Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Viðskipti innlent Pétur Freyr ráðinn framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna Viðskipti innlent Kaflaskil: „Allt í einu er ekkert í dagatalinu“ Atvinnulíf Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Viðskipti innlent Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Kalla inn silung og bleikju vegna listeríu Fordæmalaus skortur á skötu Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Vilja fresta því að slökkva á 2G og 3G sendum Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Craft Burger Kitchen hafa lokað dyrunum í síðasta skipti Kalla inn aspas í bitum frá Ora Hækka árgjöld kreditkorta í fyrsta sinn í sjö ár Innkalla pastaskeiðar úr plasti Búnir að gefast upp á fríum stæðum við TBR Hundrað þúsund í höfuðstólinn eru orðin að átján í dag Engar Robin klementínur á landinu þessi jól Ótrúlegt að bankarnir hafi komist upp með að „loka sjoppunni“ Fólk vari sig á svikurum á tilboðsdögum „Lafufu“ geti verið hættuleg „Ekki bæta við flík til að fá ókeypis sendingarkostnað“ Vélmenni leysir afgreiðslufólk Sante af hólmi „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Verðmerkingum 49 verslana ábótavant Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Segir „Arnaldarvísitöluna“ lága í samanburði við margt annað Ekki gefinn afsláttur á gjaldskyldu í snjókomu Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Telur breytinguna ekki stuðla að því að fólk festist í húsnæði Heimilin þurfi að undirbúa sig fyrir að það reyni á svigrúm þeirra Endurgreiða viðskiptavinum sem mæta í skimun mánaðariðgjald Kalla inn vínarpylsur vegna aðskotahlutar Kalla inn kjúklingalæri vegna gruns um salmonellu Sjá meira
„Ætlum ekki að hætta við allt sem er erfitt og gera allt fyrir alla“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina vera að taka til eftir óstjórn í ríkisfjármálum á síðustu árum en sérstök umræða um efnahagsmál er í gangi á Alþingi að beiðni Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokks. Guðrún sagði stöðu hagkerfisins erfiða og að atvinnulífið ætti undir högg að sækja. 6. nóvember 2025 12:19
Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segja mikilvægt að bregðast við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði. Sólveig Anna kallar eftir leigubremsu og Sigurður segir ríkisstjórnina verða að kynna sín úrræði fljótlega vegna dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu. 6. nóvember 2025 11:40
„Upp er runninn Kristrúnar Frostaveturinn mikli“ Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir meirihlutann í borgarstjórn sýna algjört ábyrgðarleysi í fjárhagsáætlun sinni fyrir næsta ár og til 2030. Hann á ekki von á því að áætlanir um milljarðaafgang standist, sér í lagi vegna stöðunnar sem uppi er í efnahagsmálum. 4. nóvember 2025 15:02