Vogamenn búa sig undir eldgos í sínu sveitarfélagi Kristján Már Unnarsson skrifar 7. júlí 2023 10:10 Gunnar Axel Axelsson er bæjarstjóri Voga. Fyrir aftan sést í Keili en svæðið þar hægra megin er talið vera líklegasti gosstaðurinn. Sigurjón Ólason Ráðamenn Voga á Vatnsleysuströnd eru viðbúnir því að eldgos gæti brotist upp í þeirra sveitarfélagi. Miðað við mat jarðvísindamanna á kvikuganginum, sem veldur jarðskjálftunum á Reykjanesi, gæti hann náð yfirborði þar sem landi hallar í átt að Faxaflóa. „
Þetta er ekkert mjög langur gangur, hann liggur frá Fagradalsfjalli og að Keili. Þetta eru nokkrir kílómetrar. Hvar sem er á þeirri línu gæti hann náð yfirborði, það er langlíklegast að hann geri það,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur en í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá hvernig landslagið er á líklegum gosstað. „Skjálftavirknin hefur verið mest alveg nyrst, alveg við Keili. Ef til vill er það líklegasti staðurinn. En það eru aðrir staðir kannski allt eins líklegir á þessari línu,“ segir hann. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur.Sigurjón Ólason „Þetta er eins langt frá öllum innviðum eins og hægt er að vera á Reykjanesskaga. Þetta eru heppilegustu gosstöðvar sem hægt er að ímynda sér miðað við það að þetta gæti leitt til goss á Reykjanesskaga. Það er langt í alla innviði, það er langt á Reykjanesbraut, Grindavíkurveg og Suðurstrandarveg,“ segir Páll. „Þetta er dálítið sérstakt landslag þarna, þetta er tiltölulega flatt, liggur hátt. Þetta er svona háslétta milli Keilis og Fagradalsfjalls og ekki mikið landslag. Þannig að þarna getur runnið talsvert hraun í raun og veru áður en það fer að renna mikið í allar áttir. Horft til norðausturs í átt að Keili í gær. Vinstra megin við hann sést í Litla-Keili. Ofarlega fyrir miðri mynd er Litlihrútur.RAX En hvert það rennur? Það gæti runnið til norðurs, það gæti runnið til vesturs, það gæti runnið til austurs og suðurs. Það gæti jafnvel runnið ofan í Meradali, beint ofan á hraunið sem þar er fyrir. Þetta er nánast ómögulegt að segja fyrir fram fyrr heldur en gosstöðin sýnir sig, ef hún gerir það,“ segir jarðeðlisfræðingurinn. Öll athyglin í fyrstu tveimur gosunum var á Grindavík enda komu eldgosin upp í lögsagnarumdæmi Grindavíkurbæjar. En ef jarðeldurinn brýst upp á svæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls gæti það þýtt eldgos í öðru sveitarfélagi, Vogum á Vatnsleysuströnd, en mörk sveitarfélaganna liggja á milli Keilis og Fagradalsfjalls. Nýjasta hraunið sem kom upp í Meradölum í fyrra fyrir miðri mynd. Horft í átt til Keilis.RAX „Við höfum auðvitað verið að undirbúa okkur og erum komin í æfingu, eins og öll sveitarfélögin hér á svæðinu, enda vinnum við þétt saman,“ segir Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga. „Það skiptir kannski ekki öllu máli nákvæmlega hvar, og ef gos kemur upp, innan hvaða sveitarfélagamarka. Viðbragðið er hið sama og hér vinna allir viðbragðsaðilar þétt saman.“ -En hver yrði helsta ógnin af slíku gosi og hraunrennsli frá þessum stað? „Athyglin beinist fyrst og fremst að innviðum, að reyna að trygga það að þessir grunninnviðir standi og raskist ekki, flutningskerfi raforku og auðvitað vegasamgöngur,“ segir bæjarstjórinn en tekur fram að ekki sé talið að byggðinni stafi sérstök hætta af eldgosi þar. Keilir séður úr austri. Fagradalsfjall til vinstri. Hægra megin sést í byggðina á Suðurnesjum. Hér má sjá hvernig landinu tekur að halla í átt að Faxaflóa og Reykjanesbraut.RAX En hvað ef hraun rynni að eða yfir Reykjanesbraut? „Þessar sviðsmyndir hafa auðvitað allar verið teiknaðar upp og þetta svæði hefur verið mjög vel rannsakað, ekki síst í tengslum við lagningu Suðurnesjalínu 2. Þannig að við búum að mjög ítarlegum rannsóknum,“ segir Gunnar Axel en bendir jafnframt á að vísindamenn telji ólíklegt að þetta geti gerst. „En viðbragðið og áætlanir gera ráð fyrir að mæta slíkum aðstæðum ef þær koma upp,“ segir bæjarstjórinn í Vogum. Nánar í frétt Stöðvar 2: Hér má sjá ítarlegra viðtal við Pál Einarsson: Bein útsending Vísis frá svæðinu er hér:
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Vogar Grindavík Tengdar fréttir Gæti gosið hvenær sem er Um 6.500 jarðskjálftar hafa nú mælst á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis frá því að yfirstandandi hrina hófst. Fimmtán skjálftar voru yfir fjórir að stærð og tugir yfir þremur. 7. júlí 2023 06:47 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira
Gæti gosið hvenær sem er Um 6.500 jarðskjálftar hafa nú mælst á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis frá því að yfirstandandi hrina hófst. Fimmtán skjálftar voru yfir fjórir að stærð og tugir yfir þremur. 7. júlí 2023 06:47