Í nokkurra kílómetra fjarlægð frá gíg eldgossins við Litla -Hrút er nú verið að gera mikilvægar rannsóknir á því hvað gerist þegar hraun rennur undir og yfir innviði. Reynt var að gera álíka rannsóknir árið 2021 en leyfi fékkst of seint.
„Við fáum að fara af stað aðeins fyrr og erum að vonast til þess núna komist hraunið yfir þannig við fáum einhverjar niðurstöður en svona rannsóknir hafa aldrei verið gerðar áður, hvergi á jörðinni,“ segir Ármann og að niðurstöðurnar muni nýtast fólki um allan heim, ekki bara Íslendingum.
En hvað er nákvæmlega verið að mæla?
„Hér erum við að undirbúa innviðina, hvernig við eigum að bregðast við ef hraunið fer að koma nær okkur,“ segir Ármann Höskuldsson, rannsóknarprófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, en rannsóknirnar miðast aðallega að því að mæla hita og hvernig og hvenær hann hefur áhrif á lagnir og kapla sem bæði liggja ofan í jörðu og eru ofan hennar.
„Það er lína uppi og það eru hitamælar á henni. Við mælum hitann í línunni og hvað hann verður mikill í línuhæð, eftir að hraun er komið undir, og það gefur okkur mikilvægar hugmyndir um hversu mikið rafmagn má fara í gegnum línuna,“ segir Ármann en flutningsgetan minnkar eftir því sem línan verður heitari.

„Það gefur líka hugmynd um hver slökunin verður á línunni,“ segir hann en auk þess er búið að grafa niður ellefu hitamæla á mismikið dýpi.
„Sá sem dýpst er, er á 120 sentímetra dýpi, og með því mælum við hvernig hitinn undir hrauninu fer ofan í jörðina,“ segir Ármann og að það skipti máli fyrir kapla, ljósleiðara og annað, sem geymdir eru í jörð. Til að sjá hvenær þeir gefa eftir miðað við dýpt.
„Það er mikilvægt að ná í þessar upplýsingar því ef hraunið eða gosin fara að færast nær byggð og renna undir rafmagnslínur eða strengi í jörðu þá vitum við nokkurn veginn hvað við höfum langan tíma að til að koma annarri tengingu á,“ segir hann og að það sé alveg ljóst að tengingin fari en með þessu sé hægt að koma í veg fyrir hörmungar hinum megin við hraunið.
Komist yfir áður en gosi lýkur
Búið er að spá því að eldgosinu ljúki á næstu tveimur vikum en Ármann er handviss um að það sé nóg til að hraunið komist yfir tilraunina.
„Já, ég er ansi viss um það. Það tekur kannski þrjá, fjóra eða fimm daga. En við sjáum hérna að aftan eru breytingar á hraunkantinum á hverjum degi,“ segir Ármann og það sjáist breytingar í Meradölum á hrauni frá bæði 2021 og 2022.
„Ég held það sé alveg ljóst að það er að safnast fyrir hér í Meradölum stór pollur og þegar hann gefur sig þá gerist þetta hratt.
Hann á samt ekki von á því að eldgosið komist nærri mikilvægum innviðum. Miðað við rennslið sem er í því þyrfti að gjósa áfram í marga mánuði svo það færi að ógna Reykjanesbraut eða Suðurstrandarvegi.
En er þetta skemmtilegt?
„Já, að sjálfsögðu. Þetta er alltaf skemmtilegt og um að gera fyrir ungt fólk sem er ekki alveg búið að ákveða hvað það ætlar að gera að koma til okkar umvörpum í háskólann. Okkur vantar að endurnýja flotann af góðum jarðfræðingum og eldfjallafræðingum,“ segir hann léttur að lokum.