„Eitthvað sem þú afrekar bara einu sinni á ævinni“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. ágúst 2023 08:00 Pep Guardiola segir ómögulegt að lið hans afreki það sama og í fyrra. Lexy Ilsley - Manchester City/Manchester City FC via Getty Images Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að það sé ómögulegt fyrir hann og hans lið að endurtaka leikinn frá því á síðasta tímabili og vinna þrennuna annað árið í röð.
Manchester City varð aðeins annað liðið í sögunni til að vinna þrennuna á Englandi þegar liðið vann ensku úrvalsdeildina, FA bikarinn og Meistaradeild Evrópu. City hefur titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tekur á móti Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley. „Þetta er eitthvað sem þú afrekar bara einu sinni á ævinni,“ sagði Guardiola um möguleika liðsins á að vinna þrennuna annað árið í röð á blaðamannafundi í gær. „Það er ekki möguleiki að við endurtökum það sem við gerðum á síðasta tímabili.“ Manchester City hefur orðið Englandsmeistari síðustu þrjú ár og getur því orðið fyrsta liðið í sögunni til að vinna ensku deildina fjórum sinnum í röð. Guardiola telur þó að liðinu takist ekki að vinna jafn marga titla og á síðasta tímabili. „Við klifum hæsta fjallið á síðasta tímabili, en á síðustu dögum höfum við verið að koma okkur niður og nú byrjum við á byrjunarreit. Við stefnum allir í sömu átt og við munum mæta miklu mótlæti þegar við reynum að klífa fjallið aftur eins hátt og mögulegt er. Fótboltinn okkar og hugarfarið okkar mun ráða því hvernig tímabilið fer,“ sagði Guardiola að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira