Skoðun

Óður til ein­stæðra mæðra

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar

Óður til ein­stæðra mæðra 

-leir til systra minna

 

Þú vaknaðir með börnunum

-því enginn var heima nema þú

 

Þú gafst þeim að borða

Þú kveiktir á sjónvarpinu

Þú vaskaðir upp

Þú fylgdir þeim á klósettið

Þú burstaðir í þeim tennurnar

Þú greiddir á þeim hárið

Þú þvoðir fötin þeirra

Þú hengdir þau upp

Þú passaðir upp á að þau ættu fín föt

til að fara í afmæli, tilbúin með gjöf

Þú knúsaðir þau og kysstir

Þú brostir til þeirra

Þú varst stolt af þeim

Þú hvesstir þig aðeins

því þolinmæðin var búin

Þú eldaðir kvöldmatinn

Þú poppaðir og horfðir

á sömu teiknimyndina

með öðru auganu

í þúsundasta sinn

Þú vaskaðir upp og settir í aðra vél

Þú skiptir um á rúmunum

Þú gekkst frá dótinu

Þú gafst litlu fötin á Rauða krossinn

og fékkst gefins gamla úlpu

því hin var orðin of lítil og ljót

Þú ryksugaðir og skúraðir

Þú settir þau í bað

og stundum fórstu í sund

en kannski bara sjaldan því

kannski

bara kannski

þurftirðu að setja í aðra vél

og elda kvöldmat

helst eitthvað ódýrt

og varst því fegin

að fiskurinn sem þau fengu

á leikskólanum í dag

ætti að vera nóg

og helltir restinni af serjósinu

í hreinar skálar

sem þú vaskaðir upp

í morgun

því þeim er alveg sama

þó þau éti serjós

tvisvar á einum mánudegi

Þú last bók og söngst

sömu vögguljóðin

sem þú hefur sungið

frá því að þau fæddust

svo kysstirðu þau bæði

skreiðst fram um níuleytið

hélst áfram að laga til

og settir í aðra vél.

Hengdir upp og skúraðir

og hugsaðir aðeins

um hvítvínstár

sem væri gott að sötra

á meðan þú kláraðir að brjóta saman

með nóttina þér við hlið

saman tvær á sófanum.

En þú keyptir mjólk í staðinn

því þannig eru mömmur.

Mömmur eins og þú.

 

Forsetinn var að senda

fálkaorðu í pósti

því enginn á hana meira skilið

en einstæðar mæður

sem gera allt þetta

á hverjum degi

og mæta samt til vinnu

skutla og sækja

áður en leikskólinn lokar

draga börnin í Bónus

til að finna eitthvað að éta

áður en það lokar

og börnin verða brjáluð.

 

Það voru engin fríkvöld

eða helgarferðir

en þú komst þeim til manns

og gerðir það vel

þú og enginn annar

því enginn var heima nema þú

og þau.

 

Afhverju ertu svona þreytt?

Viltu ekki fá þér eins og eitt hvítvínsglas?

Nei, þetta er allt í lagi,

ég fæ mér bara mjólkurglas

og kleinu

því ég þarf að drepa geitung

og kítta í kringum klósettið

því það er aftur farið að leka.

 

En að koma með mér í jóga?

Nei, takk.

Ég þoli ekki jóga.

Mér finnst betra að slaka á

við að skrúfa í sundur borð,

skipta um peru

og lyfta einhverju þungu

og bera það inn úr bílnum.

 

Djöfull ertu sterk!

Það var bara enginn annar heima.

 

Höfundur er leikkona, handritshöfundur og leikstjóri.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×