Veður

„Það verður stormur um mestallt land“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur ræddi storminn sem gengur nú yfir landið.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur ræddi storminn sem gengur nú yfir landið. Stöð 2

Fyrsta haustlægðin fer yfir landið í kvöld og gular viðvaranir tóku víða gildi klukkan sjö. Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út víða.

Haraldur Ólafsson veðurfræðingur ræddi haustlægðina, sem er ansi hraustleg, í kvöldfréttum Stöðvar 2:

„Hún er samt ekki svo kröpp að svona lægð á sér mjög margar systur á vetri. Það sem er óvenjulegt núna er að það hefur ekki verið hvasst býsna lengi, þannig lausir munir munu fara af stað. Ég held samt ekki að hún sé nægilega kröpp til að naglfastir hlutir hreyfist mikið, en það er full ástæða til að taka lausamuni og koma þeim í skjól.“ segir Haraldur.

Hann segir að stormur verði um mestallt land.

„Það verður hægari vindur á Norður- og Austurlandi en það verður stormur í kvöld og nótt á Suður- og Vesturlandi en líklega fer hann að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu strax fyrir miðnætti og draga úr úrkomu. Það er úrhellisrigning í þessu en það mun draga úr rigningunni líka, þetta fer í skúrir þegar það líður á nóttina.“

Haraldur bætir við að suðvestanátt verði um helgina en að öldugangur verði í kvöldflóði á höfuðborgarsvæði.

Flæðir yfir höfnina

Haraldur Haraldsson aðgerðarstjóri hjá björgunarsveitinni Suðurnes segir að sveitir hafi verið boðaðar út í Reykjanesbæ en tjón sé enn sem komið er smávægilegt. Hann tók eftirfarandi myndband í kvöld við Keflavíkurhöfn:

„Það hefur verið smávægilegur reytingur, ýmislegt að losna, hjólhýsi að renna til og tjaldvagnar. Sem betur fer hefur ekkert alvarlegt gerst enn. 

Hér er afskaplega óheppileg sjávarstaða. Keflavíkurhöfn var gjörsamlega á kafi, það flæddi alls staðar yfir,“ segir hann í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×