Eftir svekkjandi tap í nágrannaslagnum gegn Atletico Madrid á dögunum gátu Real Madrid glaðst á nýjan leik í dag þegar liðið hampaði sigri gegn UD Las Palmas.
Stórar spurningar hafa vaknað á síðustu dögum varðandi framtíð félagsins, stuðningsmenn voru virkilega óánægðir með tapið gegn erkifjendum sínum, svo virðist sem Carlo Ancelotti ætli að láta af störfum og Xabi Alonso taki við af honum eftir tímabilið.
Madrídarliðið var betri aðilinn frá fyrstu mínútu gegn slökum mótherja í UD Las Palmas. Þeir stjórnuðu leiknum allan fyrri hálfleikinn og fundu loks markið sem færði þeim forystuna rétt áður en flautað var til hálfleiks.
Markið skoraði Brahím Diaz eftir stoðsendingu frá Lucas Vazquez, Diaz kláraði færið af miklu öryggi eftir góða fyrirgjöf Vazquez frá hægri kantinum. Hann sneri með boltann inni í teig og kom honum svo framhjá markverðinum og yfir línuna.
Joselu tvöfaldaði svo forystuna á 54. mínútu með skallamarki eftir leiftrandi sprett og fyrirgjöf frá Rodrygo. Tveimur mörkum undir voru gestirnir svo gott sem sigraðir og Madrídarliðið þáði stigin þrjú með þökkum.
Real Madrid situr nú í 2. sæti deildarinnar þegar sjö leikir hafa verið spilaðir, þeir koma sér einu stigi upp fyrir Barcelona með þessum sigri og saxa á óvænta forystu Girona á toppi deildarinnar.