Skoðun

Lög­festing samnings Sam­einuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk

Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Ég býð mig fram til formanns ÖBÍ réttindasamtaka á aðalfundi samtakanna núna í október.

Annað áherslumál mitt er lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur undanfarin ár verið leiðarljós í allri vinnu ÖBÍ og aðildarfélaga. ÖBÍ á stóran, ef ekki stærstan, þátt í því að hann hafi verið fullgiltur. Rekja má þá vinnu sem núna fer fram um innleiðingu og lögfestingu samningsins til þess að ÖBÍ hefur hvergi gefið eftir í þeirri kröfu að hann verði lögfestur.

Áherslur samningsins eru á þátttöku og réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra í samfélaginu og skyldur ríkisins til að gera fötluðu fólki kleift að njóta þeirra réttinda sem aðrir njóta. Enn í dag eru réttindi fatlaðs fólks ekki nægjanlega vel tryggð þannig að fatlað fólk hér á landi geti lifað sjálfstæðu lífi og tekið þátt í samfélaginu.

Fatlað fólk er fjölbreyttur hópur, fötlun getur verið ósýnileg eða sýnileg, vegna sjúkdóma eða slysa, og er samspil skerðinga og umhverfis.

Lögfestingin mun styrkja stöðu fatlaðs fólks og skýra ábyrgð ríkisins betur, eyða réttaróvissu og gera því fært að sækja réttindi sín hvort sem er til ríkis eða sveitarfélaga. Þá mun samningurinn jafnframt öðlast þau beinu réttaráhrif sem nauðsyn ber til svo hægt sé að beita honum með beinum hætti fyrir dómstólum ef á þarf að halda.

Lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks mun efla og vernda réttindi og virðingu fatlaðs fólks.

Fimm áherslumál mín í formannskjöri ÖBÍ

  • Íslenskt stjórnvöld þurfa að grípa fyrr inn í hjá fötluðum börnum. Burt með biðlista og tryggjum að enginn dragist aftur úr.
  • Hvergi verði gefið eftir í þeirri kröfu að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
  • Besti árangur næst með góðri samvinnu og samtali við stjórnvöld, stofnanir og samfélagið. Við stöndum á staðreyndum og stefnumálum – en ekki í stríði. ÖBÍ þarf að starfa vel með sínum aðildarfélögum og hlusta á þeirra sjónarmið.
  • Inngilding fatlaðs fólks á vinnumarkað er lykilatriði – með atvinnulífi og verkalýðshreyfingunni vinnum við gegn fordómum og með aukinni þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Í okkur felast tækifæri og ávinningur.
  • Framfærsla er grundvöllur lífs. Við getum ekki sætt okkur við sem samfélag, aukna fátækt og stéttaskiptingu sem hefur áhrif á öll.

Höfundur er lögfræðingur og í kjöri til formanns ÖBÍ réttindasamtaka.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×